Sú var tíðin að Íslendingar keyptu upp alheimslagerinn af fótanuddtækjum og földu hann jafnóðum inni í geymslum sínum og háuloftum. Mun engin önnur þjóð eiga viðlíka feikn og gommu af sama ónotaða stykkinu og Íslendingar af Klaríon-græjunni góðu. Kannski komu þessar ófarir í innkaupum landans einhverju óorði á fótanudd og færði það niður um deildir í dekri líkamans. En sumsé; ekkert nudd hefur jafn alhliða verkan og gott iljanudd þar sem tærnar líkna öllum skrokknum. Prófið, njótið, sannfærist.
Hlúðu að þínum fótum
Fleiri fréttir
Nýjast