Það er búið að vera að röfla um það á Alþingi og út um allt síðustu daga, að innanríkisráðuneytið og lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hafi eytt nokkrum milljónum í að kaupa þjónustu almannatengslafyrirtækja - aðallega vegna lekamálsins margumtalaða.
Menn ættu að hafa minni áhyggjur af upphæðinni en því hversu hin keypta þjónusta var bersýnilega afspyrnu léleg. Hafi framganga ráðuneytisins og lögreglustjórans raunverulega byggst á aðkeyptri ráðgjöf ætti ekki bara að fá hana endurgreidda heldur ætti líka að heimta skaðabætur. Það hefur örugglega aldrei verið greitt fyrir lélegri ráðgjöf.
Ráðuneytið og lögreglustjórinn gætu þá hugsanlega komið út úr málinu með fjárhagslegan hagnað til að vega á móti laskaðri ímynd af völdum almannatengslafyrirtækjanna.