Hátíðin sem fór út um þúfur

Uppi á Íslandi eru andstæðingar ESB aðildar Íslands sennilega til hliðar við kjarna málsins þegar þeir berja á ESB vegna gríska sjálfsskapavítisins. Þeir vilja kenna öðrum en Grikkjum sjálfum um hvernig komið er.

 

Lausung í ríkisfjármálum Grikklands er rót vandans. Tuskuleg staðreynd um grískan tuskuhátt en staðreynd þó. Grikkir vöktu enga athygli á Íslandi fyrr en þeir neituðu að borga skuldir. Þá fengu nokkrir Íslendingar á þeim brennandi áhuga. Á Íslandi þótti áður fyrr engum taka því að minnast á ýmislegt smálegt í Grikklandi sem þykir kyndugt uppi á Íslandi eins og skattfrelsi og margskonar hlunnindi og „risnu“ ráðamanna sem allir skara eld að sinni köku á kostnað almennings. Það er því engan veginn fyrirmyndarlýðræði sem ríkir í Grikklandi. Ég þekki vel til Grikklands og til Grikkja. Það er ekki alltaf að marka loforð Grikkja en það er mikill munur á því hvernig þeir reyna að svindla á manni. Mér finnast það ekki drottinsvik þó menn sem eru í Hollvinafélagi Grikklands á Íslandi séu mér ósammála. Oddvitar ESB átta sig á þessu. Það nægir mér.

 

Á yfirborðinu eru friðsemdartímar í Grikklandi. Óvissa, ótti og uppgjöf eru samt sú óheilaga þrenning sem setur í dag svip sinna á allt. Enda gríska evran orðin bráðkvödd og drökmur taka senn við. Næstu dagar í Grikklandi verða samt furðu viðburðasnauðir þar sem hvergi örlar á skipulegri andstöðu við grísku ríkisstjórnina enda örðugt um vik því hún er svo vinsæl af alþýðu manna. Af sumum Grikkjum virðist bókstaflega létt þungu fargi. Nú verður altént friður fyrir þjóðmálaskúmum og drembnum pólitíkusum í náinni framtíð sem í Grikklandi merki í hæsta lagi nokkrar vikur. Lýðræðið er ekki dautt í Grikklandi. Það bara tærist upp á löngum tíma. Ríkisstjórn Grikklands er ekkert annað en náðarhöggið. 

 

Þegar örlög Grikklands eru að ráðast þá mætir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson til Brussel til að útskýra vitlausa bréfið hans Gunnari Braga frá í vetur. Taktleysið varðandi heimsókn Sigmundar er algert. Í fyrsta lagi tímasetningin enda hafa ráðamenn í Brussel engan tíma og engan áhuga á að tala við hann, og allra síst núna. Í öðru laga fer forsætisráðherra inn á verksvið utanríkisráðherra og niðurlægir hann með þessu brölti. Samkvæmt mínum heimildum innan úr utanríkisráðuneytinu eru ráðamenn þar á bæ alveg fjúkandi illir út af þessu og líta þannig á að þessi ferð Sigmundar Davíðs hafi verið óþörf, árangurslaus og truflandi. En þeir verða að skilja að hér er á ferðinni enn ein örvæntingarfulla tilraunin hans til að reyna að breyta umræðunni í samfélaginu og að vekja á sér athygli. Hann er í öngum sínum út af skelfilegum niðurstöðum í hverri skoðanakönnuninni á fætur annarri. Sigmundur Davíð heldur að hann geti híft upp fylgið með því að vera áberandi í fjölmiðlum. En þar skjátlast honum hrapallega. Því meira sem hann sýnir sig, þeim mun minna mælist fylgið hjá Framsókn.

 

Sigmundur Davíð kom fram í sjónvarpi og belgdi sig út bísperrtur eftir “fund” með Juncker. Staðreyndin er sú að þeir hittust einungis í nokkrar mínútur, einkum til að láta taka af sér mynd saman eins og tíðkast þegar stjórnmálamenn banka upp á hjá ráðamönnum í Brussel. Búið var að skrifa fréttir af “fundinum” daginn áður og semja um hvar þar ætti að standa. Hér var því á ferðinni eintóm sýndarmennska af hálfu Sigmundar Davíðs. Fjölmiðlar eru farnir að sjá gegnum þetta og því fékk heimsóknin ekki mikla athygli þeirra enda var um hreinar EKKI-FRÉTTIR að ræða.

 

Í allri þessari umræðu um Grikkland þessa dagana gleymist kjarni máls. Hann er sá að vandi Grikkja snýst ekki um gjaldmiðla eða veru í ESB. Vandi þeirra felst í stjórnleysi heima fyrir. Grikkir eru gjörspillt þjóð sem kann ekki fótum sínum forráð. Þeir tóku óhóflega mikið af lánum á sínum tíma og notuðu peningana ekki til uppbyggingar í samfélaginu heldur í eyðslu og rugl. Þeir verða sjálfir að bera ábyrgð á misgjörðum sínum og þeim á ekki að líðast að senda reikninginn af sukki, spillingu og stjórnleysi undanfarinna ára til Evrópusambandsins eða alþjóðasamfélagsins. Þeir verða að borga brúsann sjálfir og taka út sínar þjáningar.

 

Þeir einu sam verðskulda að þjást með þeim eru þeir lánardrottnar sem voru svo grunnhyggnir að lána þeim á sínum tíma. Þeir komast ekki hjá því að afskrifa hluta af kröfum sínum og þeir verða hreinlega að horfast í augu við það. Geta sagt: Gengur bara betur næst. Aðrir eiga ekki að þurfa að taka þátt í að borga afleiðingarnar af eyðslufylliríi og rugli Grikkja.

 

Loks er mikilvægt að átta sig á þeirri staðreynd að núverandi leiðtogi Grikkja, Tsipras, er Marxisti sem vill koma Grikkjum út úr ESB og evrunni, taka upp drökmu, gömlu handónýtu myntina, þannig að hann geti prentað seðla og fellt gengi eigin mynntar eins og skammtímahagsmunum hans hentar.

 

Tsipras er hættulegur og spilltur stjórnmálamaður sem hikar ekki við að blekkja þjóð sína með hálfsannleik og rangtúlkunum. Hann hugsar einingis um eigin frama og honum er nokk sama um þjóðina. 

 

Menn af þessu tagi stinga upp kollinum öðru hvoru eins og Hitler, Stalín Pol Pot – já, og það væri einnig hægt að nefna nýleg dæmi frá Íslandi. En best  að sleppa því!