Hanna fer hvergi

Hanna Birna Kristjánsdóttir ætlar ekki að segja af sér þingmennsku eða varaformennsku í Sjálfstæðisflokknum eins og flestum þykir rétt og eðlilegt í kjölfar lekamálsins.


Skýrsla Umboðsmanns alþingis er þungur áfellisdómur yfir henni og í flestum siðmenntuðum löndum þyrfti ekkert að velta vöngum yfir pólitískri framtíð hennar. Ferlinum væri einfaldlega lokið. En þannig er það ekki hér. Pólitískt siðferði er ekki á því plani hjá okkur að stjórnmálamenn víki þegar þeir hafa klúðrað málum og ofboðið siðferðiskennd þjóðarinnar.


Hanna Birna er hörð í horn að taka, allt að því illskeytt og ósvífin. Hún er mikill eiginhagsmunaseggur og hefur allan sinn stjórnmálaferil einungis hugsað um sig en ekki flokkinn eða félagana í stjórnmálum. Hún mun því einungis gera það sem henni þóknast þó það skaði flokk hennar og samferðarmenn, þar á meðal ríkisstjórnina.


Eins má ekki gleyma því að helstu stuðningsmenn hennar og hugmyndasmiðir eru einnig harðir eiginhagsmunamenn sem hafa veðjað á hana og hafa orðið fyrir áfalli um leið og hún hefur fallið af stalli. Þeir vilja að hún hangi inni á þingi og berjist áfram fyrir valdastöðu í flokknum. Hér er að sjálfsögðu verið að tala um Björn Bjarnason og Kjartan Gunnarsson, sem “bjuggu hana til” sem stjórnmálamann, svo og Styrmi Gunnarsson, Hannes Hólmstein og Jón Steinar Gunnlaugsson sem var hennar helsti ráðgjafi í ölduróti lekamálsins og lagði henni til misgóð ráð að margra mati.


Hanna Birna mun vísa til þess að hún hafi ekki fengið ákæru og því síður dóm eins og Jóhanna Sigurðardóttir fékk í undirrétti á síðasta kjörtímabili fyrir brot á jafnréttislögum og Svandís Svavarsdóttir sem fékk dóma í undirrétti og Hæstarétti fyrir


ólögmæta stjórnsýslu. Hvorug sagði af sér ráðherradómi, hvað þá þingmennsku. Á þetta mun Hanna Birna benda og segja að þar af leiðandi sé engin ástæða fyrir hana að víkja af þingi. Hún hafi þegar gert meira til að iðrast en þær Jóhanna og Svandís sem viku hvorki sem ráðherrar eða þingmenn.


Gerum því ráð fyrir að Hanna Birna komi til starfa í þinginu fyrir páska, noti svo sumarið til að ferðast um landið og heimsækja flokksfélög og reyni að afla sér fylgis og samúðar til að ná endurkjöri sem varaformaður á landsfundi sem hefst þann 22. október nk.


Bjarni Benediktsson hefur önnur áform. Hann vill að Ólöf Nordal verði kjörin varaformaður á þeim landsfundi. Þá eiga margir von á því að Guðlaugur Þór Þórðarson, ritari flokksins, hafi fullan hug á því að sækjast eftir varaformannsembættinu á þeim fundi. Vegur hans hefur mjög vaxið í flokknum eftir að hann var kjörinn ritari á Flokksráðsfundi fyrr í vetur með 80% atkvæða.


Það gæti orðið líf og fjör kringum landsfundinn og óvinir Hönnu Birnu í flokknum geta alls ekki verið rólegir. Of snemmt hjá þeim að fagna fullnaðarsigri þó Hanna sé vitanlega löskuð sem stendur.