Hagsmunaárekstur - ekki kvittanir

Vilhjálmur Árnason, siðfræðiprófessor, bendir auðvitað á hið augljósa þegar hann segir í viðtali að mál menntamálaráðherra snúist um hagsmunaárekstur en ekki kvittanir. Til einföldunar mætti segja að ráðherrann hefði átölulaust getað gert annað tveggja: þegið fjárhagsstuðninginn frá forsvarsmanni Orku/Energy EÐA veitt honum pólitíska fyrirgreiðslu í Kína. Ráðherrann valdi hins vegar að gera hvorttveggja - þiggja stuðninginn OG veita fyrirgreiðsluna. Þar með bjó ráðherrann til svo alvarlegan hagsmunaárekstur að hann hlýtur að víkja.

Kvittanir fyrir hálfum eða heilum veiðidegi í Vatnsdalsá - með eða án fæðis - skipta auðvitað nákvæmlega engu máli í þessu samhengi. Heldur ekki heimilisbókhald eða skattaframtöl ráðherrans. (Að láta umræðuna snúast um þessi aukaatriði er hins vegar svo dæmigerð séríslensk þrætubókarlist að maður fær tár í augun).

Þeir sem benda á þetta samhengi hlutanna eru hvorki sekir um ofsóknir á hendur ráðherranum, persónulega heift í hans garð, né einelti. Þeir eru einfaldlega að halda ráðherranum siðferðislega ábyrgum gerða sinna. Í enskumælandi löndum er þetta kallað \"accountability\" og þykir ein frumforsenda siðlegra stjórnarhátta.