Hafðu súkkulaðið dökkt

Það er vitaskuld sitthvað súkkulaði og súkkulaði. Og engin leið að bera saman súkkulaði og súkkulaði þegar menn og konur eru eitthvað að sökkva sér í fræðin. Kremað mjólkursúkkulaði með viðbættum sykri er náttúrlega bara eins og hvert annað sælgæti, en dökkt orgínalt súkkulaði er aftur á móti hollur skyndibiti. Fyrir utan að vera ígildi geðlyfs fyrir konur lagar það kólesterólið í báðum kynjum og dregur því nokk úr hættunni á hjarta- og kransæðameinum. Vísindin mæla með 50 grömmum á dag, takk fyrir.