Það er nauðsynlegt að koma líkamanum öðru hverju á óvart. Og þá er til dæmis hægt að prófa þetta ódýra ráð; keyptu þér miða á vel undir 500 kalli og komdu þér í klefa næstu sundlaugar sem bíður upp á hvorutveggja, almennilega íslenska gufu og grimmkaldan pott. Það er eitthvað undursamlega öðruvísi að snarphita sig inni í gufubaðinu þangað til skrokkurinn stendur á blístri og trítla svo teygmjúkum skrefum út í kalda pottinn og leggjast þar aftur með derringslegt vatnið upp að öxlum. Þetta er vont í fimm sekúndur, en eftir það jafnar líkaminn sig á sekúndu og svo kemur kikkið eftir góða mínútu eða svo þegar staðið er upp. Þá ertu ósigrandi!
Gufa og galinn kuldi
Fleiri fréttir
Nýjast