Guðni talar – píratar vaxa

Yfirformaður Framsóknar, Guðni Ágústsson, gerir aumkunarverða tilraun til að gera lítið úr sigurgöngu Pírata í grein sem birt er á miðopnu Morgunblaðsins í dag. Þó væri að málgagn sægreifa og bænda sýni honum þá virðingu að hafa málflutning hans í öndvegi.

Þessi gamlareyndi stjórnmálamaður gerir í grein sinni tilraun til að átta sig á því sem er að gerast í íslenskum stjórnmálum án þess að núverandi ríkisstjórnarflokkar fái rönd við reist. Guðni virðist ekki heldur skilja hvernig landið liggur. Nú falla öll vötn til Dýrafjarðar. Það gengur allt gegn ríkisstjórninni og það er bæði Guðna og öðrum stuðningsmönnum hennar þungbært; nánast óskiljanlegt. 

Við sem erum uppalin í sveit litum á Guðna sem fyrirmynd okkar og hetju þegar hann komst ungur á þing og fetaði í fótspor föður síns, bændahöfðingjans Ágústar á Brúnastöðum. Maður fylgdi honum lengi að málum. En allt hefur sinn tíma. Líka stjórnmálin. Þeir sem skilja það ekki eða vilja ekki skilja það enda sem pólitísk nátttröll. Guðni er því miður farinn að fylla þann hóp. Það þykir mér leitt.

Í grein sinni gerir hann lítið úr því fólki sem styður Pírata samkvæmt skoðanakönnunum og ekki síður forystu þeirra. Dramb er falli næst. Hroki af þessu tagi hittir engan fyrir nema þann sem lætur svo um mælt.

Yfirformaður Framsóknar hjálpar ekki flokki sínum með því að senda kjósendum tóninn. Samkvæmt flestum skoðanakönnunum styðja þrefalt fleiri Pírata en Framsókn um þessar mundir. Það er hætt að koma hugsandi mönnum á óvart. Fólk er búið að fá nóg af sérhagsmunagæslu Framsóknar og Sjálfstæðisflokksins, tveggja stæstu framsóknarflokka landsins. 

Fólk bíður nú eftir næsta tækifæri til að ýta þeim til hliðar og fara að hafa hagsmuni fólks í fyrirrúmi í stað sægreifa og bænda. Það verður að stöðva Framsókn áður en nýr 200 milljarða búvörusamningur verður hengdur um háls skattgreiðenda eins og til stendur.

Með hverri vikunni sem líður verður kjósendum betur ljóst að ekki gengur að veðja á gamla spillta fjórflokkinn, og allra síst Framsókn sem er spilltastur flokka. Píratar eru ákall þjóðarinnar á nýja tíma. Fyrir næstu kosningar munu fleiri alvöruflokkar líta dagsins ljós sem munu fyrst of fremst taka fylgi frá gamla og spillta fjórflokknum, frekar en Pírötum. Viðreisn mun þar láta myndarlega til sín taka.

Guðna er þetta alls ekki ljóst enda hefur hann dvalið langdvölum á Kanarí og grillað sig að utan og innan.

Hann áttar sig greinilega ekki á þróuninni hér á landi sem vindur fram hratt og örugglega meðan hann klæmist við landann á Klörubar í algleymi sólar og sælu þeirra gömlu og gleymdu.