Fylgi Framsóknar heldur áfram að hrynja, þrátt fyrir útspil sem þeir treystu á að myndi snúa dæminu þeim í hag. Með sama áframhaldi verður flokkurinn í útrýmingarhættu innan skamms.
Fréttablaðið birti skoðanakönnun á hátíðisdegi kvenna þann 19. júní. Niðurstaðan er þannig að ekki þarf að vænta mikilla hátíðarhalda hjá Framsókn sem er komin niður í 8,5% og 5 þingmenn. Fellur frá síðustu könnun úr 11,6%. Á sama tíma bætir samstarfsflokkurinn í ríkisstjórn við sig og Píratar tróna í 37,5% sem gæfi þeim 26 þingmenn. Staðfest er úr innsta hring Framsóknar að þar hafi menn verið alveg vissir um mikla fylgisaukningu í kjölfar útspils um samninga við slitabúin og fjárstreymi inn í ríkissjóð af því tilefni. Menn biðu spenntir eftir fyrstu skoðanakönnun eftir útspilið sem kom svo og staðfestir áframhaldandi hrun.
Samkvæmt þessari víðtæku könnun FB héldu einungis 5 þingmenn Framsóknar sætum sínum en 14 féllu. Eftir stæðu Sigmundur Davíð, Höskuldur, Gunnar Bragi, Sigurður Ingi og Eygló. Þjóðin nyti þá ekki yfirburðarþekkingar og vitsmuna fólks eins og Vigdísar Hauksdóttur, Sigrúnar Magnúsdóttur, Frosta Sigurjónssonar, Þorsteins Sæmundssonar og Ásmundar Einars Daðasonar, sem kom mjög við sögu fjölmiðla á dögunum vegna opinberra erinda erlendis.
Þetta gerist þrátt fyrir viðleitni Guðna Ágústssonar og mágkonu hans, Vigdísar Hauksdóttur, til að hefja formann flokksins upp til skýja í opinberri umræðu. Vigdís sagði á Bylgjunni að Sigmundur Davíð væri verðmætasti stjórnmálamaður Íslands á lýðveldistímanum. Þau lýsa Sigmundi Davíð sem goðsögn, bjargvætti og hetju sem hefur einn kjark þegar allir aðrir bogan. Grjótharður eins og Putin; illskeyttur eins og Kim Il Sung; ósnertanlegur eins og frelsishetjan Jón Sigurðsson.
En kjósendur á Íslandi eru ekki sammála eins og niðurstöður skoðanakönnunar FB sýna glöggt. Þeir bara skylja ekki snillina. Heimska þjóð, sem kannt ekki gott að meta!
Guðna dugar ekkert minna en að vitna í frægustu fundi Íslandssögunnar. Í Morgunblaðsgrein þann 16. júní sagði hann um viðbrögð forseta Íslands við baráttu Sigmundar Davíðs vegna Icesave: “Þessi gjörningur forsetans og niðurstaða þjóðarinnar jafnast á við Kópavogsfundinn 1851 þegar Jón Sigurðsson forseti og þingmenn mæltu hin fleygu orð “Vér mótmælum allir.”\"
Æ, æ, Guðni! Nú fór í verra. Kópavogsfundurinn var haldinn árið 1662 og er frægastur fyrir að þá skrifaði Árni Oddsson lögmaður undir grátandi. Þjóðfundurinn var hins vegar haldinn á Sal Menntaskólans í Reykjavík árið 1851. Þar kom Jón Sigurðsson heldur betur við sögu og var ekkert á leiðinni í Kópavoginn.
Bitamunur en ekki fjár. Hvað munar Framsóknarmenn um 189 ár og tvo fundi?
Ég er úr sveit eins og Guðni Ágústsson, einum 10 árum yngri en hann. Þegar Guðni komst ungur á þing þá glöddumst við sveitakrakkarnir. Sáum að við ættum einnig möguleika. Síðan hef ég fylgst glöggt með gerðum hans og oft glaðst yfir þekkingu Guðna á sögu og þjóðlegum fróðleik. En enginn er óskeikull nema páinn í Róm. Vona að Guðni láti þessa hallærislegu uppákomu ekki trufla sig og haldi áfram að reyna að hefja Sigmund Davíð upp til skýjana. Ekki veitir nú af.
Guðni gætir þess vonand að reiða ekki of hátt til höggs næst þegar ráðist verður í að búa til þjóðhetju.
Svo minni ég hann á sígilda speki: Oflof er háð.