Grét yfir stærð læranna aðeins 10 ára gömul - irpa fönn: „þetta er ekkert spretthlaup, þetta er langhlaup“

Irpa Fönn Hlynsdóttir hefur gengið með og fætt tvö börn, hún er að eigin sögn með slappa húð á maganum og brjóstunum ásamt því að vera með nóg af aukakílóum og feikinóg af slitum.

„Ég er alveg einstaklega þakklát og stolt af líkamanum mínum, líkt og við ættum öll að vera. Spáið aðeins í því hversu magnaður hann er. Þetta er að sjálfsögðu ekki einu skiptin sem líkaminn minn hefur gengið í gegnum eitthvað því jú ég hef gengið í gegnum allskonar líkamlegar breytingar á mínu æviskeiði líkt og við öll. Að sjálfsögðu hafa orðið breytingar, þó barneignirnar hafi án efa leitt af sér drastískustu breytingarnar,“ segir Irpa Fönn í einlægum pistli sínum á síðunni Mæður.

\"\"

Í pistlinum ræðir Irpa um þær breytingar sem líkami hennar hefur gengið í gegnum, hversu oft hún hefur átt erfitt með að sætta sig við þær og hversu stolt hún er í dag.

„Það koma að sjálfsögðu tímabil og dagar inn á milli þar sem að ég er ótrúlega sár yfir lausu húðinni á maganum mínum sem lafir, eftir að hafa fætt Maríus þá hefur mér ekki tekist að losna við hana. Það er svona þegar bumban birtist á innan við mánuði frá engu yfir í að springa utan af 20 marka barni. Ég á svolítið erfitt með að horfa á mig í speglinum suma daga, mér finnst ég einhvern veginn ekki vera ég, ég er svo allt öðruvísi en fyrir ári síðan. Eðlilega samt ég var að eignast barn,“ segir Irpa og viðurkennir það að þrátt fyrir að vera stolt og þakklát fyrir líkama sinn í dag þá sé það ekki alltaf auðvelt.

\"\"

Irpa segist oft hugsa til fortíðar og hugsana sinna síðan þá. Þegar henni fannst líkami sinn vera ómögulegur og leið illa. Þegar hún lítur til baka í dag áttar hún sig á því hversu fallegur líkami hennar var og hversu miklar ranghugmyndir hún hafði.

„Þegar ég var yngri gerði ég æfingar sem áttu að minnka líkurnar á ennishrukkum og fór að gráta yfir stærðinni á lærunum mínum, ég var 10 ára, hversu klikkað er það. Í dag veit ég þó að það er mikilvægt að vera þakklátur fyrir hverja hrukku, hvert grátt hár, slitin, slöppu húðina, örin og allt hitt. Þetta þýðir einfaldlega að ég er að eldast og lifa lífinu, þetta eru ummerki því til sönnunar og minningar um liðnar stundir.

Það eru forréttindi að eldast, það eru forréttindi að geta eignast börn, það eru forréttindi að … ég gæti talið endalaust upp en þú nærð þessu, svo takk, takk kæri líkami fyrir það að standa með mér í gegnum þykkt og þunnt, takk fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig og gerir og takk fyrir allar liðnar stundir, ég vona svo innilega að þær verði miklu fleiri!“ Segir Irpa.

\"\"

Á dögunum var Irpa að skoða myndir og áttaði sig á því hversu mikið líkami hennar hefði breyst á undanförnu tveimur og hálfu ári.

„Mér hefur fundist eitthvað að mér á þeim flestöllum en um daginn setti ég þær allar saman og hugsaði: Nei andskotinn þetta er magnað! Líkaminn minn er magnaður og hann á skilið að ég sé þakklát fyrir hann og átti mig á því að þetta er ekkert spretthlaup, þetta er langhlaup og við erum öll sífellt að breytast, það er partur af lífinu – ég get ekki beðið eftir að sjá hvernig ég verð eftir ár

Ég vona að þið séuð sammála mér hve magnaður líkaminn er og langar að biðja ykkur öll að staldra stundum við og þakka honum fyrir allt það magnaða starf sem hann vinnur.“