Þessa dagana líður mér oft eins og árið 2007. Þá borðaði sumt fólk gull, byggingakranar rigguðu upp illa byggðum húsum. Fólk kvartaði yfir vaxandi firringu. En fréttir af sjómönnum og afla glöddu mig því þær veittu jarðtengingu.
Núna árið 2016 fela menn fé í skattskjólum, nýtt hótel býður upp á gistingu í leðurrúmi skreytt Swarovski-kristölum og stórvirkar vinnuvélar rífa gamalt timburhús í hasti.
Stöðugar fréttir af földum peningum í útlöndum, verktökum á gráu svæði, vaxandi vændi sem fylgir ferðamannaiðnaðinum o.fl. o.fl. er merki um firringu. Og þá er gott að fá fréttir af aflabrögðum. Því þegar fréttir bárust af því í dag að grásleppuveiðar hafa sjaldan gengið eins vel, ,,það er mokveiði“ segja grásleppukarlar þá gleðst ég, því það er alvöru og það veitir jarðtengingu
Kær kveðja
Sirrý