Sumar sumarbækur eru yndislegar, svo sem grípandi, spennandi og tilfinningaríkur reyfari Árelíu Eydísar Guðmundsdóttur sem var að koma út, en fyrir allar konur og sæmilega kvenlega karla yfir ferutugu er þetta dásemd ein, jafnvel svo tár sjáist á hvarmi. Plottið er svona: Lögfræðingurinn Halla Bryndís fær í hendurnar ranga ferðatösku þegar hún lendir í London og mikilvægir fundir framundan. Hvað gerir kona sem situr uppi með allt annan fataskáp en sinn eigin? Samhliða því sem við fylgjumst með Höllu Bryndísi leita út fyrir þægindaramma sinn með ófyrirsjáanlegum afleiðingum er skyggnst inn í dramatískt líf eiganda ferðatöskunnar. Þessi fyrsta saga höfundar lofar ekki bara góðu, heldur fullvissar mann um framhaldið ...
Gramsið í ferðatösku ókunnugra
Fleiri fréttir
Nýjast