Góður svefn gerir fólk fallegra - sjáðu myndina

Hvernig svafst þú í nótt? Niðurstaða rannsóknar vísindamanna við Karolinska-sjúkrahúsið í Stokkhólmi komst að því að einstaklingar sem sofa lítið á næturnar eru síður aðlaðandi og óheilbrigðari en þeir sem fá góðan nætursvefn.

Rannsóknin fór þannig fram að 23 sjálfboðaliðar voru fengnir í myndatöku annars vegar eftir átta klukkustunda svefn og hins vegar eftir 31 klukkustundar vöku. Gætt var þess að allar myndirnar væru sambærilegar og máttu sjálfboðaliðarnir ekki sýna nein svipbrigði né vera með andlitsfarða. Það voru svo fengnir aðrir sjálfboðaliðar sem gáfu myndunum einkunnir með tilliti til útlits.

 \"\"

Mynd: Tv: Eftir svefnleysi - Th: Eftir góðan nætursvefn / John Axelsson/Karolinska Institutet

Niðurstaða rannsóknarinnar var sú að myndirnar sem sýndu einstaklinga með lítinn svefn að baki fengu ávallt lægri einkunnir heldur en þeir sem höfðu sofið lengur. Jafnvel þrátt fyrir að um sömu einstaklinga væri að ræða.