„go to germany“

Í frægri ferð Johns F. Kennedy, forseta Bandaríkjanna til Vestur Berlínar fyrir um 50 árum flutti Kennedy hina frægu „Ich bin ein Berliner“ ræðu sína.  Haft var eftir Kennedy síðar að þessi dagur í Berlín hefði verið einn af eftirminnilegustu dögum lífs hans, aldrei hefði hann notið þess betur að heimsækja land og kynnast þjóð eins og þennan dag í júní 1963.
Aðra, ekki síður áhrifaríka ræðu hélt hann við brottför sína frá Tegel flugvelli í Vestur Berlín sama dag. 
Hann sagði meðal annars í ræðu sinni að hann væri búinn að skrifa þrjú orð á blað og setja í umslag fyrir sinn eftirmann. Hann ætti að opna umslagið þegar hann missti móðinn og þyrfti á hvatningu að halda. Sjálfur ætlaði hann hugsanlega að líta í umslagið þegar hann þyrfti innblástur og upplyftingu.  Í bréfinu stóð „Go to Germany“. 
Kennedy sá að á aðeins 18 árum frá stríðslokum hafði þýska þjóðin náð sér upp úr algjöru hruni allra innviða og atvinnulífs með undraverðum hætti og var þegar orðið eitt öflugasta hagkerfi Evrópu.
Í dag er Þýskaland fyrirmynd margra landa á ýmsum sviðum. 
Stjórnmálamenn á Íslandi ættu að kynna sér hvernig þjóðverjar hafa náð tökum á verðbólgu og samdrætti, byggt upp aga og gott skipulag í rekstri hins opinbera,  lagt áherslu á verkmenntun og stutt sérstaklega við vöxt á litlum og meðalstórum fyrirtækjum. 
Tækniþróun og frumkvöðlastarf er þar til fyrirmyndar, skólakerfið og heilbrigðiskerfið með því besta sem gerist í heiminum. Stöðugur gjaldmiðill og frelsi í viðskiptum eru undirstaða þess árangurs sem þeir hafa náð.  Þjóðverjar eru til fyrirmyndar í umhverfisvernd og neytendavernd svo eitthvað sé nefnt.
Þjóðverjar hafa einnig sýnt einstakan hjálparvilja við móttöku flóttamann frá stríðhrjáðum þjóðum. Tugþúsundir sjálfboðaliða eru að aðstoða flóttafólkið við að koma undir sig fótunum um allt Þýskaland. 
Samtök atvinnulífsins í Þýskalandi hvetja fyrirtæki til að taka flóttamenn í vinnu. Einn stjórnandi stórfyrirtækis þar sagði í viðtali að það væri ekki hægt annað en að taka vel  á móti starfsmanni sem hefði labbað 3000 kílómetra til að komast í atvinnuviðtal.
Þjóðverjar hafa tekið á móti um 1,3 milljónum flóttamanna. Það samsvarar því að við Íslendingar hefðum tekið á móti um 4000 flóttamönnum. Við höfum tekið á móti um 40. 
Ég hvet alla stjórnmálamenn sem vilja láta gott af sér leiða að fara að ráðum Kennedys og fara til Þýskalands og kynna sér árangur þeirra sem þar sitja við stjórnvölinn. Sérstaklega mættu þeir kynna sér kosti stöðugleika sem eru stórkostlega vanmetnir á Íslandi að mínu