Gakktu upp að steini

Hver ferð byrjar vitaskuld á einu skrefi – og það á líka við um breyttan lífsstíl. Og viti menn; ekkert sameinar betur góða útivist, hollari hreyfingu og dásamlegi náttúruskoðun en gönguferð um fjöll og firnindi. Það er um að gera að byrja smátt, svo sem að trítla upp að Steini í Esjunni, sem er að verða fjölfarnari leið en Laugavegurinn, en það má líka vera næsta bæjarfjall, eitthvað hæfilega bratt en þó ekki jafnslétta. Og fara sér hægt á góðum skóm. Færa sig svo smám saman upp á skaftið og helst í fylgt Ferðafélagsins sem bíður upp á fjölda manneskjulegra ferða sem eru ætlaðar almenningi, ekki ofurhugum. Einmitt þar geturðu tekið þitt farsælasta skref.