Fyrirmyndarfyrirtækin sem yfirgefa krónuna

Fyrirmyndarfyrirtækin sem yfirgefa krónuna

Creditinfo veitti í byrjun febrúar 682 fyrirtækjum viðurkenningu sem fyrirmyndarfyrirtæki á Íslandi 2015, en eingöngu 1,9% íslenskra fyrirtækja standast þau skilyrði sem Creditinfo setur.

Það er að mörgu leyti áhugavert að skoða lista Creditinfo og sjá m.a. þau fyrirmyndarfyrirtæki upptalin sem hafa átt kost á að yfirgefa krónuna og gera nú flest upp í evru eða dollar.    Þau eru 30 að tölu.   Það væri áhugavert að vita hversu mörg hinna 652 fyrirtækja á listanum myndu feta í fótspor þessara stórfyrirtækja og yfirgefa krónuna ef þeim stæði það til boða.   Að fjármagna rekstur með 1-2% vöxtum í stað 8-9% hlýtur að gjörbreyta allri ákvarðanatöku og afkomu.

En sárgrætilegast er til þess að vita að fjöldi þeirra fyrirtækja sem kæmist á fyrirmyndarlistann yrði miklu, miklu meiri ef íslenskur fjármagnskostnaður væri ekki að sliga rekstur þeirra.

 

Samherji

EUR

 

Hampiðjan

EUR

Norðurál

USD

 

Vinnslustöðin

EUR

Icelandair Group

USD

 

Medis

EUR

Össur

USD

 

Þorbjörn, Grindavík

EUR

Síldarvinnslan

USD

 

Actavis

EUR

Icelandair

USD

 

Ice Fresh Seafood

EUR

HB Grandi

EUR

 

NOX Medical

EUR

Ísfélag Vestmannaeyja

USD

 

LS Retail

EUR

Eimskip

EUR

 

Icelandic Travel

EUR

Loftleiðir-Icelandid

USD

 

Iceland Seafood

EUR

Marel

EUR

 

Flugfélagið Atlanta

USD

Bláa Lónið

EUR

 

Go Pro

EUR

ELKEM

NOK

 

Terra Nova Sól

EUR

Rammi

EUR

 

Huginn

USD

Útgerðarfélag Akureyrar

EUR

 

Akraborg

EUR


Já – það hefur löngum verið munur á Jóni og Séra Jóni.