Litla ísland og atburðir árið 2017

Íslendingar hafa haft mikil viðskipti við Breta um margar aldir en kynni manna á milli hafa efalaust aukist mjög hina síðustu áratugi.


Margt hefur staðið í ótrúlega föstum skorðum öldum saman í bresku þjóðlífi. Nú er ýmislegt að breytast á Stóra-Bretlandi.


Skotland heimkynni lifrarpylsu, Skotapilsa, sekkjapípna, hafragauts og dýrra Skotaveiga sendir nú rösklega fimmtíu þingmenn Skoska þjóðaflokksins á breska þjóðþingið.


Mikillar kalsakæti gætir þess vegna  í hleypidómaskrifum málsmetandi fréttamanna í íslenskum fjölmiðlum sem ásamt íslensku einagnrunasinnum eru þess fullvissir að nú komi Bretar fljótlega inn í hóp þeirra Utangarðsríkja  sem hafna aðild að Evrópusamvinnu. 


Þessi atburðarás á eftir að skapa mikinn vanda fyrir íslenska einangrunarsinna sem í máttvana gremju eru fullir eftirvæntingar ef ekki tilhlökkunara því þeir vænta þess að breskir einagrunarsinnar hafni Evrópusamvinnu rétt eins og þeir.  Breskir Íhaldsmenn ætla þó að standa við kosningaloforð sitt um þjóðaratkvæðagreiðslu. Það er meira en hægt er að segja um kollega þeirra á Íslandi.


Úrslit bresku þingkosninganna beina sjónum mínum fram til áramóta 2017 en þá áforma breskir íhaldsmenn að uppfylla það kosningaloforð síns flokks að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um Stóra álitamálið sem er aðild að eða úrsögn úr Evrópusambandinu.


Á Íslandi heldur ótrauð áfram baráttan fyrir Litla-Íslandi en þá baráttu leiða reiðir og þröngsýnir broddborgarar sem hafa það takmark eitt að láta Íslendinga skerast úr leik eins og kotþjóð og gera landið eitthvað meira en Grænland eða sem smáa útgáfu af Noregi á alþjóðlegum vettvangi.


Þessi gauragangur er sambland af ómenguðum hugsjónum og fascískum áróðri svo bersýnilegum að eigna má hann óhikað fáeinum nafntogðum mönnum.


Þetta er einfeldningslegur broddboragraháttur sem er pokalegur klaufalegur og óburðugur. Broddborgarar eru alls staðar en íslensku broddborgararnir eru svífandi og jarðbundir í sennn.


Margir íslenskir eingangrunarsinnar eiga erfittt með að finna ádeiluna. Þeim er ofureðlilegt að taka hana sem blátt áfram lýsingu á aðdáanlegum staðreyndum. 


Sterk tilhneiging gerir vart við sig til að vingast við Rússland og Rauða Kína en óvingast við meginland Evrópu.


Samfara hreinni einagrunarstefnu eins og þeirri sem tröllreið Bandaríkjunum um langt árabil.


Næsti bær við þetta verður svo djúp andúð og öfund gagnvart Bandaríkjunum í heimsmálum jafnframt fullyrðingum um persónulega vináttu og félagslega tengsl við valdhafa og ráðamenn Rússlands og Rauða Kína.


Sumir eingagrunarsinnar á Íslandi vilja þegar í stað segja gersamlega skilið við stefnu Evrópusambandsins og Bandaríkjanna en aðrir titra af fögnuði við hin minnstu merki þess að Forseti Íslands og ráðherrar ríkisstjórnar séu vel metnir meðal stjórnarherra í Moskvu og Peking.


Enda þótt Ísland breytist og á ýmsu leiki um viðhorf sannra Íslendinga til annarra þjóð þá er íslenska þjóðin ekki eitt í dag og annað á morgun eins ég kemst að orði hér í Svíþjóð, þegar ég er beðinn að lýsa þjóð minni


Litla-Ísland stendur í ströngum fæðingarhríðum en að mörgu leiti fer vel með því og grönnum þess í vestri og í austri. Þá mun sannast í þingskosningum á Íslandi vorið 2017 að landið á sér von í "Viðreisn."