Sveinbjörn Pálsson er skrifaður fyrir myndbandi sem sett var á youtube í gærkvöld þar sem frasi Ólafs Ragnars, No, no, no, no - Thats not going to be the case, er leiðarstef í kunnu popplagi.
Lagið nýtur vinsælda í augnablikinu en myndbandið ber yfirskriftina Umlimited Ólafur Ragnar kosningalag 2016.
Myndbandið er unnið á grundvelli upplýsinga Panamaskjalanna sem sýna með afhjúpun gærdagsins að þverneitun forseta Íslands þegar amerísk fréttakona CNN spurði hann í beinni útsendingu sl. föstudag, er ekki í takt við staðreyndir. Þá svaraði hann: \" No, no, no, no - Thats not going to be the case.\"