Blaðamaðurinn Jóhann Hauksson sagðist í síðdegisþættinum BadaBing! á Hringbraut FM 89.1 í gær telja víst að Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, ætti erfitt með svefn um þessar mundir og stæði ef til villl frammi fyrir því að hann hafi gert mistök með því að gefa kost á sér sem forseti enn eitt kjörtímabilið.
„Ég hef verið krítískur undanfarin ár á málflutning Ólafs Ragnars og finnst hann vera dálítið mikið að halda sér á floti og málflutningur hans bera keim af lýðskrumi,“ sagði Jóhann sem telur stöðu Ólafs Ragnars gjörbreytta eftir fregnir af því að forsetafrúin, Dorrit Moussaief og fjölskylda hennar, hafi geymt fjármuni í fyrirtækjum í skattaskjólum.
Jóhann sagði að óhjákvæmilega myndi þetta gera forsetanum erfitt fyrir og það eitt að vera tengdur við Panama-skjölin skapi tortryggni. „Ég held að Ólafi Ragnari, forseta vorum, sé dálítið órótt núna. Ég held að hann eigi erfitt með að sofna á kvöldin,“ sagði Jóhann og bætti við að hann gerði ráð fyrir því að jafnvel sækti að forsetanum efi um hvort það hafi verið rétt ákvörðun að gefa kost á sér eina ferðina enn.
„Hann hefði getað hætt með sæmd en horfir nú fram á að kannski gangi þetta ekki upp. Að hann hafi kannski ekki alla þræði í hendi sér og ráði ekki sviðinu eins og hann hélt að hann gæti gert.“
Jóhann var blaðamaður á DV í hruninu 2008 og gekk þar vasklega fram í fréttaflutningi af spillingarmálum sem þá skutu upp kollinum og hann talar í þættinum einnig um fólk sem kemur sér í pólitík til þess að byrja þar aðstöðubrask en slíkt hefur löngum þótt loða við framsóknarmenn, eins og nýleg dæmi svo sanna. „Nú sér almenningur betur hvernig þetta virkar og hvernig einhvern veginn er alltaf vitlaust gefið,“ sagði Jóhann um nýjustu uppljóstranir úr Panama-lekanum.
Hægt er að hlusta á þáttinn hér. (Samtalið við Jóhann Hauksson hefst á mínútu 1:25)
BadaBing! er á dagskrá Hringbrautar FM 89.1 alla virka daga frá 16-18
Hægt er að hlusta á Hringbraut í beinni útsendingu hér.