,,fólk sem er og fólk sem fer.“

Margir velta vöngum yfir því núna að fara eða vera.

Og það er stundum talað eins og allir séu að flytja til Noregs og hér sé ekki búandi. Ferðir Vesturfaranna til Kanada fyrr á árum eru nefndar til sögunnar eins og nú séu sambærilegir erfiðleikar.

En mér finnst hvetjandi að horfa á þá sem eru um kyrrt og gera það besta úr aðstæðum sínum og annarra. Nýlega var ég á ferð á Hofsósi og kynntist einstaklega skemmtilegu fólki, náttúruperlum og sögufrægum stöðum svo eitthvað sé nefnt.

Ungur maður, Ingvar Daði Jóhannsson rekur fyrirtækið Haf og land ehf. í Skagafirði. Ég fór með honum í siglingu út í Málmey, Þórðarhöfða og í sjóstangaveiði.  Þorskurinn hreinlega stökk upp í bátinn. Og ég sá með eigin augum að lundinn er ekki bara til uppstoppaður í túristabúðum.

Ingvar Daði er menntaður smiður en lenti í slysi og getur ekki starfað við iðn sína. Þá snéri hann sér að öðru: Fékk sér bát og stofnaði fyrirtæki. Sigling með honum er einstök upplifun og var reyndar toppurinn á Íslandsferð 12 ára stráks frá Þýskalandi sem veiddi 12 þorska og hafði aldrei skemmt sér betur.

Innifalið í siglingunni er sundferð í hina rómuðu laug á Hofsósi þar sem synt er til móts við Drangey. Meiriháttar. (Takk Lilja Pálmadóttir og félagar fyrir raunsnaskapinn og ykkar þátt í þessum unaði).

Og það væri líklega hvorki búandi né starfandi á Hofsósi í dag nema fyrir starf hins athafnasama hugsjónamanns Valgeirs Þorvaldssonar bónda á Vatni. Hann sá atvinnumöguleikana í sögu staðarins og er maðurinn á bak við Vesturfarasetrið á Hofsósi. Þangað koma þúsundir manna um langan veg til að finna rætur sínar, fá svör við ýmsum spurningum sem Valgeir grefur upp úr gagnagrunni.

Fjölmörg störf hafa skapast við að byggja upp safnið, reka það og þjónusta gestina.  Gistiheimili, veitingastaðir, hestaleigur og fjölmargt annað þarf að vera til staðar fyrir gesti Vesturfarasetursins. Restaurant Sólvík er t.d. ljómandi góður veitingastaður í Gilinu á Hofsósi.

Og eitt sinn stóð til að staðsetja ruslahauga Norðurlands á dásamlegum útsýnisstað við Kolkuós þar sem Tindastóll, Drangey, Málmey og Hofsós blasa við. En sem betur fer var hægt að stöðva þau áform. En Valgeir Þorvaldsson og fleira fólk, sem skilur verðmætin í náttúrufegurð og sér tækifærin í sögu þjóðarinnar, stóð að því að bærinn Kolkuós var gerður upp og er þar í dag rekið hágæða hótel sem full ástæða er til að mæla með fyrir vandláta.

Og af því að fólk kvartar gjarnan yfir því að hvergi sé þverfótað fyrir erlendum ferðamönnum á vinsælustu ferðamannastöðunum þá þarf ekki annað en að fara aðeins úr alfaraleið t.d. á Hofsós. Þar er fólk, friður og ferðamenn í hæfilegum skömmtum og sátt og samlyndi.

Höfum orð á því sem vel er gert og tölum möguleikana upp en ekki út og burt.