Fljótleg og gómsæt uppskrift af ketó múslí - fullkomið á morgnanna

Hanna Þóra Helgadóttir flugfreyja og tveggja barna móðir byrjaði á ketó mataræði fyrir ári síðan og segist henni aldrei hafa liðið betur.

„Ég hef mun meiri orku, liðverkir eru liðin tíð og ég að sjálfsögðu mun léttari á mér líkamlega. Fyrir mér er þetta lífsstíll sem hentar mér mjög vel og mér finnst gaman að deila því sem ég hef verið að prófa og græja í eldhúsinu,“ segir Hanna Þóra en hún hefur verið dugleg að prófa sig áfram með ketó mataræði og deilir reglulega uppskriftum sínum á Instagram.

„Leitin að góðu múslí sem inniheldur ekki mikið af kolvetnum hefur verið frekar erfið en þá var auðvitað tilvalið að baka sitt eigið múslí sem passar inn í mataræðið.“

Þessi uppskrift er fljótleg og afar gómsæt.

Uppskrift :

150 grömm sneiddar möndlur

50 grömm graskersfræ

50 grömm sólblómafræ

1/2 dl möndlumjöl

1 dl chia fræ

\"\"

Blöndum öllum fræjum og mjöli vel saman í skál.

Blanda 1 dl af ketó vænu sírópi út í 75 ml af vatni.

Ég nota fiber sírópið frá sukrin eða maple sweet like sugar frá good good.

\"\"

Hrærið þessu vel saman og hellið yfir þurrefnin

Dreifið blöndunni á bökunarpappír og bakið við 160 gráður á blæstri í 20-30 mín

\"\"

Á 5 mínútna fresti hreyfi ég við blöndunni og sný múslíinu með spaða þannig það verði gyllt og fallegt á öllum hliðum og þorni vel.

Þegar það er komið gott crunchy hljóð í allt múslíið þá er það tilbúið.

Geymist í lokaðri krukku eða boxi.

Hægt er að fylgjast með Hönnu Þóru á Instagram með því að ýta hér.