Fjórflokkur á förum

Enn ein skoðanakönnunin staðfestir það sem hefur verið að birtast okkur á undanförnum mánuðum að kjósendur á Íslandi hafa fengið nóg af fjórflokknum.

 

Allir þessir fjórir flokkar hafa fengið sín tækifæri og klúðrað þeim með svo afgerandi hætti að kjósendur láta ekki bjóða sér upp á meira. Sjálfstæðisflokkurinn er að festast í 24% fylgi, Framsókn í 10-12%, Samfylkingin í 12-14%  og Vinstri grænir eru neðan við 10%. Þó skipt hafi verið um nöfn á Samfylkingu og VG, þá eru þeir komnir “heim” í fylgi og stefnumál sinna forvera, krata og komma. Ferð þeirra til sameiningar vinstri manna var ekki til fjár. Framsókn skiptir ekki um nafn en breytir um stefnu eftir því hvernig vindar blása. Hann er hentistefnuflokkur, nú eins og áður, og hann er “opinn á báða enda” eins og jafnan. En núverandi forysta nær ekki til fólks og loforð þeirra og útdeiling opinberra verðmæta virka ekki eins og fyrr.

 

Sjálfstæðisflokkurinn er að margra mati andsetinn. Hann nýtur sín ekki vegna þess að stefnumál hans sem hafa dugað gegnum tíðina fá ekki notið sín. Forystan ræður ekki við hjörðina því hann hefur ekki döngun í sér til að segja einangrunaröflum stríð á hendur. Þess í stað velur hann að láta þau ráða för. Eftir því er ekki eftirspurn og þess vegna minnkar fylgi flokksins jafnt og þétt. Þeirri vegferð er hvergi nærri lokið. Rétt að byrja ef fram heldur sem horfir.

 

Fjórflokkurinn, D, B, S og VG, er samkvæmt nýrri skoðanakönnun með 57% fylgi. Það var 75% í kosningunum vorið 2013 og enn meira í kosningum vorið 2009 eða 90%. Með öðrum orðum: Fjórflokkurinn er að hrynja. Hann er á förum.

 

Píratar eru nú að mælast með þriðjung fylgis fjórða mánuðinn í röð. Ekki lengur tilviljun. Kjósendur eru að senda skilaboð. Þeir hafna fjórflokknum, sem fékk öll sín tækifæri en nýtti þau ekki. Kjósendur kalla eftir nýjum gildum. Þeir hafa nú Pírata til að leggja atkvæði sín á. Þeir eru væntanlega ekki að fara að kjósa Pírata í þessum mæli í næstu kosningum eftir rúmlega eitt og hálft ár. Píratar munu þá fá mikið fylgi. En þá munu Íslendingar einnig sjá nýja flokka og ný tækifæri.

 

Ég spái því, og byggi það á menntun minni víða um lönd og þekkingu, að fjórflokkurinn sé smám saman að líða undir lok og að alveg nýjir flokkar komist til valda eftir næstu kosningar. 

 

Viðreisn mun gegna veigamiklu hlutverki og sópa til sín fylgi þegar flokkurinn velur að koma fram. Hann hefur svo margt á sinni könnu sem fólk vil sjá, svo sem breytingar á landbúnaðarkerfinu, sanngjarnari innheimtu auðlindargjalda af sjávarútvegi, endurreisn heilbrigðiskerfins, marktæka stefnu í utanríkismálum og lausnir á þeim vanda sem helst má ekki nefna og snýst um framtíð íslensku krónunnar sem nú er vafin inn í bómull gjaldeyrishafta. Síðast en ekki síst að stöðva hagsmunagæslu fyrir hina fáu og ríku sem núverandi ríkisstjórn hefur sem grundvallarverkefni sitt. 

 

Þá munu Píratar áfram njóta hylli. Eins eigum við eftir að sjá enn aðra nýja flokka koma fram og ná árangri.

 

Þegar aðstæður eru þær sem hér er lýst og þjóðarpúls Gallups mælir stjórnmálaflokka með þeim hætti sem hér að framan getur, þá skrifar fyrrum áhrifamaður í íslensku samfélagi, Styrmir Gunnarsson, um Sjálfstæðisflokk sinn: “Hvað veldur því að flokkur, sem áratugum saman fékk 37% og yfir 40% í þingkosningum situr nú fastur á þeim stað, sem hann er?”

 

Styrmir gæti litið sér nær. Hann og skoðanabræður hans, öfgamenn og einangrunarsinnar, hafa hrakið þúsundir manna frá þessum flokki og komist upp með það vegna þess að forystan er of veik til að reka öfgamennina af höndum sér. Því situr flokkurinn uppi með þá og aðra öfgamenn sem hræðast erlend samskipti og vilja einangra Ísland utan um sveitarómantík og “fæðuöryggi”.

 

Styrmir Gunnarsson er fulltrúi liðinna tíma í Sjálfstæðisflokknum. Tíma sem kjósendur vilja ekki meira af. Aðrir flokkar eiga sína fulltrúa frá þessum kaldastríðstímum og þeir skemma fyrir nýrri framvindu flokkanna. Því er komið að tímamótum og uppstokkun.

 

Heimsýnarkvartettinn er öllu alþjóðasinnuðu og nútímalegu fólki mikið gleðiefni. Hann er víti til varnaðar.

 

Kvartettinn er að jafnaði skipaður Jóni Bjarnasyni, Davíð Oddssyni, Hjörleifi Guttormssyni og Guðna Ágústssyni. Ef mikið liggur við fær hann aðstoð frá Styrmi Gunnarssyni og Birni Bjarnasyni.

 

Uppgangur Pírata á sér eðlilegar skýringar.