Bókin “The 4-Hour Workweek” eftir Tim Ferriss var í fjögur ár á metsölulista New York Times og hefur verið þýdd á 35 tungumál. Tim ræðst á það hefðbundna mynstur okkar vesturlandabúa að vinna 40 tíma vinnuviku í 45 ár, taka okkur nokkrar vikur í sumarfrí og safna peningum fyrir “stóra fríið” þegar komið er á eftirlaun.
Tim fann það út að í rekstri hans litla fyrirtækis tókst honum að stytta vinnutíma sinn úr 80 klukkustundum á viku í fjórar með því að vinna eitt mikilvægt verkefni í einu og fela öðru starfsfólki önnur verk. Hann notar 80/20 regluna í daglegum störfum en þessi regla frá Pareto segir okkur að 80% árangurs okkar kemur frá 20% verkefnanna – mikilvægustu verkanna.
Tim hvetur okkur til að horfa á árangur (e. effectiveness) af störfum okkar, ekki bara afköst (e. efficiency).
Nýlega var bent á að forfeður okkar á veiði- og söfnunartímabilinu (fyrir um 10 þúsund árum) unnu aðeins í þrjár klukkustundir á dag, 21 klukkustund á viku. Mannfræðingar halda því fram að mannkynið hafi aldrei verið eins hamingjusamt og þá. Fyrir Alþingi liggur nú fyrir tillaga að styttingu vinnuvikunnar í 35 klukkustundir og talað um það sem framfarir !
Það er þekkt staðreynd að við Íslendingar vinnum um 20% fleiri vinnustundir en nágrannaþjóðirnar til að ná svipuðum lífsgæðum. “Honum féll ekki verk úr hendi og vann eins og hestur alla tíð” eru algeng eftirmæli um hinn sístritandi Íslending.
Nýlegar rannsóknir sýna að um 36% vinnutíma fólks er varið í verkefni sem skila litlum sem engum árangri eða eru ekki í takt við stefnu fyrirtækisins eða stofnunarinnar. Brandarinn um “hvað vinna margir hér”?.......”svona helmingurinn” er kannske ekki eins vitlaus og hann hljómar!
Við getum flest unnið vinnuna okkar með agaðri hætti, með því að forgangsraða verkefnum betur og vinna betur sem ein heild á vinnustaðnum. Lykillinn að árangri felst í góðum “fókus”, að einbeita sér að því mikilvæga og dreifa kröftunum ekki of mikið.
Þetta næst líka með því að einfalda vinnuferla, minnka fundarhöld, halda bara standandi fundi og fækka minnisblöðum og stytta þau, fækka glærum í kynningum, stytta starfsmannasamtölin og forðast alla óþarfa skriffinnsku og skrifstofupólitík.
Þetta hefst líka með því að minnka áreiti í vinnunni, fækka ruslpóstum, auka sjálfvirkni og deila verkefnum innan fyrirtækisins til þeirra sem eru hæfastir til þess og sumum tilfellum til viðskiptavinanna sjálfra eins og bankarnir, bensínstöðvarnar, hótelin og flugfélögin eru að gera.
Hugsanlega er fjögurra tíma vinnuvikan hans Tim Ferriss fjarlægt markmið en við getum örugglega bætt okkur á þessu sviði.