Margir hafa reynt að réttlæta aflandsfélög - að tilgangur þeirra sé ekki alltaf að svíkja undan skatti eða leyna eignarhaldi. Og það er án efa rétt, en í dag er mikil orðsporsáhætta hins vegar tengd aflandsfélögum.
Þú getur farið inn á strippbúllu í þeim eina tilgangi að kaupa kók? En þegar út er komið rekst þú á kunningja þinn sem verður nokkuð hvumsa að sjá þig á svona stað. Þú getur útskýrt fyrir honum að þú hafir eingöngu verið þarna til að kaupa gosdrykk, en ekki er öruggt að kunningi þinn kaupi þá skýringu.
Þannig að ef þú ert þyrstur og langar í kók þá ferðu ekki inn á strippbúllu nema taka þá áhættu að missa mannorðið í leiðinni.
Í dag á það sama á við um aflandsfélög.