Hver ferð byrjar á einu skrefi, en stefnan getur verið alla vega, til dæmis bara á næsta fjall, jafnvel líka á Þorra og Góu. Fátt stælir líkama og huga betur en að ganga í ró og næði upp á bæjarhólinn og ef til vill upp á næsta fjall við bæinn sinn og skima þaðan yfir sviðið sem er manni svo kært. Í tilviki Reykvíkinga getur það verið Esjan, svo sem upp að Steinu undir Þverfdellshorni, en hjá Akureyingum kannski Krossanesborgir, hjá Hafnfirðingum Búrfell og svo framvegis. Góðir skór og stafur gera ferðina góða og örugga.
Prófaðu bara næsta fjall
Fleiri fréttir
Nýjast