Lífsstíls-, frétta- og upplýsingaþátturinn Ferðalagið hefur fengið afar góðar viðtökur á haustdagskrá Hringbrautar, en þar leiða saman hesta sína sjónvarpsfólkið Linda Blöndal og Sigmundur Ernir svo úr verður veisla í farteskinu.
Þættirnir spanna allt frá ferðasögum, borgarkynningum, umræðu um álitamál í ferðaþjónustunni og fréttum af greininni til þess nýjasta sem er að gerast í helstu stoð íslensks atvinnulífs nú um stundir.
Í þætti kvöldsins verður fróðleg umræða um þolmörk íslensks vegakerfis með vegamálastjóra og formanni Samtaka íslenskra sveitarfélaga, en dæmi eru um 40 prósent aukningu umferðar á Suðurlandi milli síðustu ára á meðan aukningin er tífalt minni eða meira á meginlandi Evrópu. Þá er hús tekið á heimshornaflakkaranum Teiti Þorkelssyni, viskan undin úr kvikmyndagerðarmanninum og rithöfundinum Berki Gunnarssyni sem þekkir heimsborgina Prag betur en Reykjavík og eins er í þættinum kostulegt innslag þar sem Linda Blöndal ræðir við erlenda ferðamenn í miðborginni um álit þeirra á höfuðborg Íslands, en þar sýnist sitt hverjum og sannast raunar það fornkveðna að glöggt er gestsaugað. Ferðafréttir verða svo á sínum stað í fjölbreyttum og sprellfjörugum þætti.
Allar ábendingar ferðaþjónustuaðila, samtaka í þeim geira og einstakra ferðaalanga um efnistök ogg viðmælendur í næstu þáttum eru vel þegnar á netfangi umsjármanna, [email protected] og [email protected].