Það hefur komið mér á óvart hve margir hafa rætt við mig um grein sem ég birti hér á Hringbraut fyrr í vikunni þar sem vakin var athygli á því að frjálshyggjupostulinn Hannes Hólmsteinn Gissurarson hefði aldrei unnið annars staðar en hjá opinberum aðilum. Hann hefur verið sjálfskipaður talsmaður einkaframtaksins á Íslandi án þess að hafa starfað á vettvangi hins fjálsa atvinnulífs.
Menn nefndu í samtölum við mig að þeir hefðu ekki gert sér grein fyrir þessari þversögn í lífi og starfi Hannesar vegna þess hve ákafur hann hefur verið í að hvetja fólk til dáða á sviði einkarekstrar og fjárfestinga í atvinnulífinu, samfélaginu til góðs og einstaklingunum til ávinnings. T.d. á hann skilgreininguna á hinum hamingjusama einkafjárfesti sem “græðir á daginn en grillar á kvöldin.”
Af þessu tilefni rifjaðist upp fyrir mér skemmtilegt viðtal sem birtist í Tímariti Máls & Menningar í fyrra við Þráin Bertelsson kvikmyndaframleiðanda og fyrrum þingmann.
Spyrillinn: \"Einhvern tímann sagðirðu mér, að þú teldir þig verðskulda Nóbelsverðlaun í hagfræði fyrir að hafa gert sjö kvikmyndir í fullri lengd og aldrei miss húsið þitt.”
Þráinn: “Já, maður segir svo margt. Mér fannst dáldið fyndið á stundum á þinginu að standa í karpi um einkarekstur við menn sem aldrei höfðu rekið eigið fyrirtæki, heldur bara unnið með einum eða öðrum hætti hjá ríki eða sveitarfélögum, því opinbera, alla sína tíð – og sögðust trúa á einstaklingsframtakið. Ég trúi illa mönnum sem ekki praktísera sjálfir það sem þeir prédika. Pilsfaldakapítalismi er hins vegar íslensk sérgrein og gengur út á að almenningur eigi kúna að nafninu til og hirði hana og fóðri en sérvaldir aðilar fái að leggjast undir hana og sjúga spenana eins og tilberar í gömlum ævintýrum.
Ég hef unnið fyrir mér með einstaklingsframtaki í erfiðri samkeppnisgrein mestan hluta ævi minnar. Ég veit út á hvað frjáls samkeppni gengur. Ég hef tekið þátt í henni og staðist hana.”
Já, það er meira en unnt er að segja um Hannes Hólmstein, þennan kunna postula frjálshyggju á Íslandi, sem aldrei hefur komið nærri einkarekstri; einungis þegið styrki þaðan.
Þetta á svo sem við um fleiri en Hannes. Vinur hans og velgjörðarmaður, Davíð Oddsson, hefur ekki starfað hjá öðru einkafyrirtæki um dagana en Morgunblaðinu, fyrst með námi og síðar sem ritstjóri eftir að hann var hrakinn út úr Seðlabanka Íslands. Hann sagði þó frá því í viðtali fyrir mörgum árum að hann hefði á námsárum sínum unnið sér inn aukapening með því að leika jólasvein með Katli Larsen og haft gott upp úr því einkaframtaki sínu.
Þetta er þó meira einkaframtak en vinurinn Hannes Hólmsteinn getur státað af. Nú er spurning hvort Hannes á ekki að freista þess að komast í samstarf við einhvern leikara eins og Davíð gerði á sínum tíma og leika jólasvein? Það færi vel á því.
Hannes myndi sóma sér vel sem Stúfur.