Féll gersamlega fyrir skotlandi

Rokkfræðingurinn Arnar Eggert Thoroddsen féll gersamlega fyrir Skotlandi þegar hann dvaldi þar við nám um árabil í byrjun þessa áratugar og segist helst vilja enda þar ævina sem gamall skeggjaður karl í skotapilsi.

Hann segir samfélagið í Edinborg vera einstaklega manneskjulegt - og það hafi í sjálfu sér ekki tekið hann og fjölskyldu sína langa tíma að tengja sig skoskum venjum; þegar konunni hans, einn daginn, hafi verið boðið í karrí með konunum í kring hafi þau hugsað sem svo, nú er þetta komið; að fara út í karrí merki jú að skvetta aðeins í sig í góðra vina hópi.

Þetta kemur fram í einstaklega líflegu og skemmtilegu spjalli við Arnar Eggert í lífsstílsþættinum Ferðalaginu á Hringbraut í vikunni sem nú má sjá hér á vef stöðvarinnar, en þar bætir rokkfræðingurinn því við að það hafi verið svolítið skrýtið fyrir hann sjálfan að helstu og mestu vinirnir sem hann kynntist í Edinburg hafi allt saman verið Englendingar, það sé eiginlega vart til frásagnar.

Hann segir Skota líta á sig sem Skota og ekkert annað, svo stoltir sem þeir séu af uppruna sínum, sögu og menningu - og þeir horfi ekki suður á bóginn í leit að fyrirmyndum, Norðurlöndin séu þar í öndvegi og eigi að heita hin fullkomnu samfélög að þeirra mati.

Arnar Eggert endurgeldur nú Skotum gestrisnina frá því um árið með heljarinnar skoskri menningarveislu á Kex hosteli á fimmtudagskvöld þar sem hægt er að gæða sér á haggis og öðrum skoskum mat og skola honum niður með alvöru öli og viskí af bestu sort. Teitið byrjar síðdegis og varir fram í svartasta myrkur með söng og hljóðfæraslætti.

Hægt er að njóta samtalsins við Arnar Eggert í Ferðalaginu klukkan 20:00 í kvöld.