Farðu vestur með fíólín

Takk Forlagsmenn fyrir að endurútgefa Vesturfarabækurnar hans Böðvars Guðmundssonar í einni kilju. Hýbíli vindanna og Lífsins tré komu út síðla á síðustu öld en standa öllum lesendum ennþá svo skýrt og greinilega fyrir hugskotssjónum að það er eins og þeir hafi rétt verið að klára bækurnar. Með fullri virðingu fyrir mörgu því besta sem skrifað hefur verið á íslenska tungu – og það er margt – þá eru þessar bækur Böðvars slík gersemi að vart verður við annað jafnað. Þetta eru stór orð, en í huga þeirra sem eiga enn eftir að lesa bækurnar, munu þau reynast vera nærri lagi. Það er ekki á hverjum degi sem manni finnst maður vera að missa ástvin sinn við lestur lokasíðnanna, slík eru tengslin milli lesanda og bóka í þessu tilviki. Já, skelltu þér vestur með Ólafi fíólín og fólkinu hans öllu.