Íslendingar eru vanalega að springa úr stolti út af eigin fólki – og það er bara þjóðlegt og skemmtilega hjárænulegt. Og all mörgum sinnum á þessum síðustu og verstu vetrardögum hefur þjóðin sprungið svo að segja í loft upp yfir velgengninni hans Jóhanns Jóhannssonar Globe- og næstum Óskarsverðlaunahafa. Þó ekki væri nema fyrir tónlistina hans þá er um að gera að skella sér í sjálfa ræmuna sem verðlaunatónlistin hans skreytir, nefnilega The Theory of Everything sem nú er sýnd á breiðtjöldunum í Sambíóunum Álfabakka, Kringlunni og Akureyri. Þetta er djúp og fögur saga um eðlisfræðinginn Stephen Hawking og samband hans við eiginkonu sína; hæfilega ljóðræn og mennsk á köflum, en út í gegn svo listilega leikin að unun er á að horfa.
Farðu á myndina hans jóhanns
Fleiri fréttir
Nýjast