Stundum er maður ekkert alltof tilleiðanlegur í stóru steikina eða allan útilátinn aðalréttinn, hver svo sem hann kann að vera. Þá er um að gera að prófa forréttaröltið, koma kannski makanum aðeins á óvart, panta úr launsátri listfenga forrrétti á þremur ólíkum veitingahúsum í hæfilegri nánd hver við annan – og gefa sér sosum eins og 40 mínútur á hverjum stað í að bragða og njóta þess besta sem hvert hús hefur upp á að bjóða með þar til gerðu glasi af meðmætlu víni, eða bara sóda af bíllinn er með í för. Vittu til; þetta er einhver nýlunda, ekki eins og þessi venjulega lífsreynsla að fara út að borða, heldur leiðangur um sjálfar lystisemdir lífsins …
Farðu á forréttarölt
Fleiri fréttir
Nýjast