Einn okkar ástsælasti og besti söngvari, Eyþór Ingi Gunnlaugsson, eignaðist sitt fjórða barn í gær. Frá þessu greinir hann á samskiptamiðlum. Eyþór Ingi birtir myndskeið og segir:
„Lítil stúlka skaust í heiminn í gær. Móðir og barni heilsast vel og satt best að seiga er Soffía bara eins og hún hafi farið út að skokka. Ég er miklu meira eins og ég hafi verið að eiga barn! Hún er miklu hressari, enda jaxl og fædd í hlutverkið. Í dag eigum við fjórar dásamlegar stelpur samann og mér finnst ég ótrúlega ríkur og heppinn maður!“