Frænka þín Guðrún Pétursdóttir réði þér heilt á Austurvelli s.l. sunnudag er hún sagði: "Gættu að þér Bjarni, þú ert ungur maður..... Farðu vel með trúverðugleika þinn. Hann er eitt það dýrmætasta sem maður á".
Þú sagðir á Alþingi í gær "Meirihlutinn ræður". Við erum mörg sem trúum því ekki fyrr en við tökum á því að með meirihluta eigir þú við ríkisstjórnina en ekki þjóðina.
Til að taka af allan vafa langar mig að biðja þig um að svara eftirfarandi spurningu og til að auðvelda þér verkið þannig að við týnum okkur ekki í orðagjálfri og ómöguleika hef ég hana í krossaprófsstíl.
Spurning:
Ætlar þú að efna eftirfarandi loforð sem birtist í stefnuskrá flokksins fyrir alþingiskosningar árið 2013: "XD - Þjóðin tekur ákvörðun um aðildarviðræður við ESB í þjóðaratkvæðagreiðslu á kjörtímabilinu..."
Svar:
Já
Nei