Ástralskur nuddari sem sérhæfir sig í svokölluðu „tantra-nuddi“ virðist hafa verið mjög áfjáður í að fara höndum um konur á Íslandi þar sem hann auglýsti ókeypis nudd, einungis fyrir konur, með handskrifuðum miða sem límdur var á vegg á Laugaveginum í gær.
Eiríkur Jónsson, ritstjóri Séð og heyrt, vakti athygli á miðanum á vefsíðu sinni eirikurjonsson.is, og Tóti greip þann bolta á lofti, í síðdegisþættinum á Hringbraut FM 89.1 í gær, og hringdi í nuddarann.
Strax kom í ljós að nuddarinn hafði takmarkaðan áhuga á að ræða þessi mál við karlmann en Tóti hélt honum á línunni með því að þykjast vera að panta nudd fyrir kærustuna sína.
Hann spurði í framhaldinu hvort þetta væri eitthvað dónalegt og hvort nuddarinn myndi snerta kærustuna á viðkvæmum stöðum. Nuddarinn sagði vissulega vera um sérstaka tegund tantra-nudds að ræða en hann gæti boðið upp á hefðbundið nudd.
Nuddarinn benti Tóta síðan á að ef til vill væri þetta ekki ráðlegt ef hann væri óhress með þetta og benti honum á að ef til vill væri heppilegra að leita til venjulegs nuddara, þótt kærastan hans væri að sjálfsögðu velkomin.
Ekki var annað að heyra á manninum en hann hefði haft nóg að gera en hann hélt af landi brott í dag, þannig að fleiri konur komast ekki í tantra-nudd hjá honum. Í bili að minnsta kosti.
Hlustið á samtal Tóta og erótíska nuddarans á Hringbraut FM 89.1
Síðdegisþáttur Tóta er á dagskrá Hringbrautar FM 89.1 alla virka daga frá 16-18.
Hægt er að hlusta á Hringbraut í beinni útsendingu hér.