Átti að vera í þyrlunni sem fórst

Ég afréð fljótlega á ferli mínum sem flugstjóri á þyrlum Gæslunnar að draga ósýnilegt tjald á milli mín í stjórnklefanum og sérfræðinganna aftar í vélinni sem voru að reyna að bjarga þar slösuðu fólki, oft við hrikalegar aðstæður - og einkanlega átti þetta við þegar börn áttu í hlut.

Þetta segir Benoný Ásgrímsson, reynslumesti leitar- og björgunarflugstjóri landsmanna eftir allt sitt merka og mikilvæga ævistarf, en hann lýsir nokkrum erfiðustu augnablikum flugsögu sinnar í áhrifamiklu viðtali við Sigmund Erni í Mannamáli sem frumsýnt var á fimmtudagskvöld - og nú er hægt að sjá hér á vef stöðvarinnar. Hann segir þar að erfiðast hafi verið að fara á slysstað barna, en iðulega hafi hann þá þurft að hafa sig allan við til að beygja ekki af - og þar hafi ósýnilega tjaldið komið sér vel; hann hafi fyrir vikið getað einbeitt sér að stjórn þyrlunnar og látið læknum og björgunarfólki aftur í vélinni um að sinna sínu starfi.

Hann ver drjúgum tíma í að lýsa tæpasta björgunarfluginu þegar áhöfn hans freistaði þess á jólaföstu að bjarga skipverjum um borð í Bergvíkinni sem strandað hafði í sendinni fjöru Vöðlavíkur fyrir all nokkrum árum, en þegar þyrla Benonýs braust þar í gegnum illviðrið á síðustu stundum fyrir myrkur og áhöfnin kom loksins auga á hrakta skipverjana sem héldu sér dauðahaldi í möstrin uppi á brú skipsins, hafi hann staðið frammi fyrir þeim ömurlega kosti eftir ítrekaðar tilraunir að þurfa að snúa frá slysstað og hætta við björgunina. En hann hafi ekki orðið sjálfum sér reiður, hann vissi það örlagaríka andartak að hann var að taka rétta ákvörðun, jafn ömurleg og hún var þó í raun og sann.

Benoný er einkar persónulegur í samtali þeirra Sigmundar Ernis, lýsir því meðal annars hvernig hann kynntist réttlætinu eftirminnilega í sveitinni undir Eyjafjöllum, svo og fyrstu stöðuhækkuninni frá því að vera sendisveinn hjá Ellingsen að hann var ráðinn viðvaningur um borð í einu skipa Gæslunnar, þá aðeins fjórtán ára gamall. Og teningunum var kastað, hann lærði til stýrimanns á næstu árum - og eftir að hafa tekið þátt í tveimur landhelgisstríðum lá leiðin á þyrlur Gæslunnar sem hann hefur stjórnað í næstum fjörutíu ár. 

Hann lýsir því hvaða áhrif það hafði á hann að missa fjóra félaga sína í þyrluslysinu í Jökulfjörðum 1983, aðeins fimm árum eftir að hann byrjaði sjálfur á stjórna þyrlum Gæslunnar, en hann átti sjálfur að vera þar um borð - og hann hafi á þeim tíma þurft að hugsa allt upp á nýtt. Eftir alla 12 þúsund flugtímana og 35 þúsund flugtökin og lendingarnar standi þó eftir þakklæti fyrir að hafa getað klárað sína vakt og verkefni sem alls ekki hafi verið sjálfgefið í ljósi brösóttrar þyrlusögu Íslendinga á fyrri árum, en hann tekur þar þó fram að trúin hafi á stundum mildað nauðsynlega lífshræðslu í starfi hans; allan tímann á flugi hafi hann verið staðráðinn í að fara með faðirvorið ef svo illa hefði farið að þyrlan færi niður.

Viðtalsþátturinn Mannamál er frumsýndur öll fimmtudagskvöld klukkan 20:30.