Er fitandi að fasta? hverju á maður að trúa?

 

Hugleiðingar í kökubakstrinum

Í vikunni bakaði ég þá ljótustu lakkrístoppa sem ég hef séð. Þessar smákökur eiga að vera léttar og loftkenndar en í þetta skipti féllu þær niður eins og þungar klessur. Ástæðan var sú að ég stalst til að setja allt of mikið af súkkulaði, lakkrískurli og lakkrískúlum í kökurnar. Lakkrístopparnir stóðu því ekki undir sér og lippuðust niður eins og manneskja sem borðar allt of mikið sætmeti og verður bara þreytt og slöpp. Meðan á þessu stóð fór ég að hugsa um misvísandi skilaboð sem stöðugt berast frá heilsupostulum og vísindamönnum:

Fyrir stuttu var stöðugt hamrað á nauðsyn þess að borða á þriggja tíma fresti og morgunmat mætti aldrei sleppa.

Nú er boðað að best sé að borða 5 daga í viku en fasta 2 daga í viku.

Aðrir segja að réttast sé að fasta í 18 klukkustundir en borða bara á 6 klukkustunda tímabili. T.d. fasta í 18 klukkustundir frá 8 á kvöldin og borða bara milli kl. 14 og 20. (Enginn morgunmatur þar). Frumurnar eiga víst að vinna svo vel ef líkaminn setur ekki alla orku í að borða og melta. Þetta ku vera gott gegn alzheimer og fleiri sjúkdómum.

Ég veit ekkert hverju ég á að trúa. En ég trúi þó þeim ráðleggingum að ætli maður að hætta að borða eitthvað þurfi að ákveða hvað eigi að koma í staðinn. Til dæmis ef maður ætlar að hætta að borða sykur eða brauð þarf  að ákveða strax hvað eigi að borða í staðinn. Og ef maður ætlar að hætta að borða óhollt á kvöldin með sjónvarpinu þarf að ákveða hvaða snarl á að koma í staðinn. Annað er óraunhæft.

Og ég trúi líka orðum séra Jónu Hrannar Bolladóttur þegar hún ræddi um streituspik í þættinum ,,Fólk með Sirrý“ nýlega. Jóna Hrönn losnaði við 30 kíló þegar hún dró sig út úr stressi og annríki og fór í námsleyfi til Bandaríkjanna.  Í landi hamborgara og kleinuhringja hrundu af henni kílóin þegar hún gaf sér tíma til að hlúa að sér og hvíla sig. Svefnleysi og streita er nefnilega svo fitandi.

Þannig að hvort sem við borðum morgunmat og máltíðir á þriggja tíma fresti, eða föstum í 18 klukkustundir á sólarhring, þá er heilsubætandi að nota jólafríði til að slaka á, slappa af og hvíla sig.

Já og gæta þess að troða ekki svo miklu í sig að maður lippist niður eins og klesstur lakkrístoppur.

Kær kveðja,

Sirrý