Er eygló að sprengja stjórnina?

Ákveðin framkoma Eyglóar Harðardóttur, félagsmálaráðherra, nú um helgina gagnvart samstarfsflokknum vekur upp spurningar um það hvort Framsókn ætlar að sprengja stjórnina og hlaupa frá öllu saman.


Ráðherrar leika sér ekki að eldinum eins og hún gerir nema að útfærð áætlun búi að baki. Víst er að hún leyfir sér ekki slíkar hótanir nema með samþykki Sigmundar Davíðs. Sér hann þann leik á borði að sprengja og sleppa frá öllu klúðrinu; verkföll skekja samfélagið, rammaáætlun í uppnámi, makrílmálið strand, ekkert gengur með gjaldeyrishöftin og nánast allt í klessu hjá ríkisstjórninni þrátt fyrir góðæri í sjálfu atvinnulífinu.


Sjálfstæðisflokkurinn er lamaður út af mörgu, þar á meðal klúðursmálum ráðherra. Hanna Birna er baggi, Ragnheiður Elín til vandræða og Illugi Gunnarsson á leið út úr ríkisstjórninni enda lík í lest hennar.


Við þessar aðstæður gæti Framsókn séð von á að auka fylgi sitt úr þessum 10% sem þeir eru fastir í.


Forsætisráðherra getur rofið þing og boðað til kosninga. Er það planið þessa dagana? Það gerist þó ekki nema slíkt skref yrði talið þjóna hagsmunum Sauðárkróks sem Birgitta Jonsdóttir þingmaður kallar "Sikiley Íslands."


Nú þarf Þórólfur kaupfélagsstjóri að hugsa hratt.