Er bjarni að mynda nýja stjórn?

Það er ljóst að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson ætlar ekki að horfast í augu við tapað tafl og segja af sér eins og nú er yfirgnægandi krafa í þjóðfélaginu. Svör hans á þingi og í fjölmiðlum benda til þess að hann ætli áfram að sýna hroka og dómgreindarleysi og láta hagsmuni þjóðarinnar lönd og leið. Hvað þá eigin flokks og ríkisstjórnarinnar allrar.

Mikil ólga en nú innan Sjálfstæðisflokksins vegna málsins. Mönnum er orðið ljóst að forsætisráðherra er á góðri leið með að draga ríkisstjórnina og Sjálfstæðisflokkinn með sér niður í fallinu. Því una margir sjálfstæðismenn afar illa og eru ekki tilbúnir til þess að láta fara þannig með flokkinn. Menn vilja ekki að Sjálfstæðisflokkurinn verði skálkaskjól fyrir Sigmund.

Heimdallur, félag ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, hefur nú ályktað gegn ríkisstjórninni og lýst því afdráttarlaust yfir að Sigmundur Davíð verði að víkja, annars sé ríkisstjórnin fallin. Heimdallur hefur ekki áður ályktað með svo afgerandi hætti gegn ríkisstjórn sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur átt aðild að. Samþykkt þeirra vekur því mikla athygli enda á Heimdallur sér sterkan sess innan flokksins. Margir af helstu leiðtogum flokksins gegnum tíðina hafa byrjað feril sinn með því að leiða starf Heimdallar. Ólíklegt þykir að stjórn félagsins fari fram með svo djarfa ályktun án þess að það sé gert með vitund og velvilja formanns og varaformanns flokksins.

Þá hefur það vakið mikla furðu að Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, hafi dvalið á Flórída í fríi með fjölskyldu sinni síðustu 10 daga þegar allt hefur kraumað hér heima. Skýring hans um að hann hafi misst af flugi heim þykir heldur aum í þessari grafalvarlegu stöðu, þeirri verstu sem upp hefur komið á Íslandi frá því í október 2008 þegar efnahagshrunið dundi yfir. 

Íslendingar gengu í gegnum efnahagskreppu og bankahrun árið 2008 en nú ríkir pólitísk og siðferðisleg kreppa í landinu vegna háttsemi forsætisráðherrans sem hefur orðið sér og þjóð sinni til minnkunar út um allan heim.

Þeir sem vilja verja fjarveru Bjarna Ben, hafa haldið því fram að nú sé hann að sýna þau klókindi að halda sig fjarri ágangi fjölmiðla og flokksmanna sinna á meðan hann vinnur að myndun nýrrar ríkisstjórnar.

Því skyldi Sjálfstæðisflokkurinn ekki losa sig við Framsókn við þessar vonlausu aðstæður og mynda nýja stjórn með 2 öðrum flokkum?  Sjálfstæðisflokkurinn hefur 19 þingmenn, Samfylking 9 og Björt framtíð 6. Alls 34 þingmenn sem er þokkalegur meirihluti.

Þessi stjórn gæti boðað til kosninga í október nk. Ekki er unnt að kjósa fyrr vegna forsetakosninga sem verða haldnar á Íslandi þann 25. júní nk., eftir tæpar 12 vikur. Þingkosningar geta ekki farið fram fyrir þann tíma og heldur ekki yfir hásumarið í júlí eða ágúst.

Svona ríkisstjórn gæti einungis sinnt fáum en brýnum málum. Hún þyrfti að ljúka uppgjöri við slitabú bankanna og láta efna til gjaldeyrisútboðs vegna krónubréfa, hún þyrfti að leggja fram fjárlög og koma með tillögur um breytingar á stjórnarskrá. Eins þyrfti hún að afturkalla búvörusamning og fresta málinu til næsta kjörtímabils. Hún yrði að sneiða hjá ágreiningsmálum á borð við fiskveiðistefnu, Evrópumál, húsnæðismálin og afnám vísitölubindingar. Þau mál yrðu að liggja óhreyfð fram yfir kosningar næsta haust.

Það  má ætla að Samfylking og Björt framtíð ættu mjög erfitt með að sætta sig við Bjarna Benediktsson sem forsætisráðherra einfaldlega vegna þess að hann er því miður ekki með alveg hreinan skjöld gagnvart aflandsviðskiptum, þó mál hans séu smá í samnaburði við háttsemi Sigmundar Davíðs. Því gæti þurft að semja um annan til að leiða nýja ríkisstjórn. Ef svo færi, þá hljóta allra augu að beinast að forseta Alþingis, Einari K. Guðfinnssyni, en um hann ríkir meiri sátt en flesta alþingismenn nú um stundir. Hann nýtur virðingar þings og þjóðar og virðist hafa hreinan skjöld þegar kemur að veraldarvafstri utan veggja þingsins.

Yrði ekki góður svipur á ríkisstjórn sem svona yrði skipuð?  

Forsætisráðherra: Einar K. Guðfinnsson. Fjármálaráðherra: Bjarni Benediktsson. Utanríkisráðherra: Árni Páll Árnason. Menntamálaráðherra: Óttar Proppé. Innanríkisráðherra: Ólöf Nordal. Félagsmálaráðherra: Helgi Hjörvar. Umhverfisráðherra: Ragnheiður Ríkharðsdóttir. Iðnaðar-og ferðamálaráðherra: Oddný Harðardóttir, Heilbrigðisráðherra: Brynhildur Pétursdóttir, Sjávarútvegs-og landbúnaðarráðherra: Kristján Júlíusson.

Við skulum samt hafa í huga fréttir um að Ólafur Ragnar Grímsson hafi hraðað för sinni heim frá útlöndum. Hann hlýtur að vilja vera tilbúinn til að taka á móti hópi þingmanna sem kæmi með tillögur um nýja þingræðislega meirihlutastjórn til að frelsa þjóðina úr þeirri sjálfheldu sem Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hefur komið henni í. 

Guðmundur Örn Jóhannsson
Framkvæmdastjóri og útgefandi, Hringbraut miðlun ehf.