Elín verður fryst

Elín Hirst kom skemmtilega á óvart um helgina þegar hún lét eftir sér að gagnrýna bæði forsetann og Davíð Oddsson um leið. Ekki var ráðist á garðinn þar sem hann er lægstur. Forsetinn ávarpaði þingið í véfréttarstíl hvað varðar eigin áform um framboð eða ekki framboð til forseta á næsta ári. Hann talaði hins vegar afar skýrt þegar hann niðurlægði þingmenn og nánast hótaði þeim vegna hugmynda um breytingar á stjórnarskrá lýðveldisins. Þótti flestum mikið skorta á um auðmýkt í málflutningi Ólafs Ragnars. Elín tók undir þá gagnrýni. Jafnframt hvatti hún fyrrverandi stjórnmálaleiðtoga til að hafa sig hæga og gefa núverandi stjórnmálamönnum vinnufrið. Engum duldist að hún var að ávíta Davíð Oddsson fyrir samfelld niðurrifsskrif hans á síðum Morgunblaðsins. Hún lét Davíð fá það óþvegið. Eitthvað sem fæstir hefðu spáð að hún hefði kjark til. En lengi má manninn reyna.

Skemmst er frá því að segja að fulltrúar flokkseigenda ærðust út af beittri gagnrýni Elínar Hirst á skuggaformann flokksins. Sumir af þeim sem tóku til máls notuðu ljót orð um þingmanninn og mátti skilja á málflutningi þeirra að Davíð Oddsson væri heilagur maður, hafinn yfir alla gagnrýni og það flokkaðist undir guðlast að tala til hans með niðrandi hætti.

Vandi Sjálfstæðisflokksins og fylgisleysi á m.a. rætur að rekja til þess að núverandi formaður flokksins hefur ekki tekið sér það vald sem honum var falið með réttum hætti. Hann þorir ekki að hrista af sér gamla drauga eins og Davíð Oddsson, Björn Bjarnason og Styrmi Gunnarsson sem vaða uppi í flokknum með þeim hætti að kjósendur hrekjast frá honum. Bjarni Benediktsson þyrfti að spyrna við fótum og gera þessum gömlu körlum það ljóst að þeirra tími er löngu liðinn. Hann þyrfti að draga strik í sandinn og segja: Hingað og ekki lengra. En hann gerir það ekki og lætur þá ráða allt of miklu um stefnu flokksins. Hann eltir öfgastefnu þeirra í stað þess að fara brattur gegn þeim.

Viðbrögð flokkseigenda við gagnrýni Elínar sýna að þeir líta enn á Davíð sem heilagan mann. Mínar heimildir innan úr flokknum herma að Elínu Hirst verði refsað fyrir þetta framtak. Talið er að hún muni eftir þetta fá rýrari verkefni á vegum þingflokksins, að henni verið tekið með fyrirvara, að hún verði hreinlega fryst öðrum til viðvörunar.

Ástandið í Sjálfstæðisflokknum er mjög slæmt um þessar mundir. Mikill skjálfti er vegna landsfundar sem hefst eftir 5 vikur. Hanna Birna Kristjánsdóttir ætlar að halda áfram sem varaformaður gegn vilja margra í forystu flokksins. Hún ætlar ekki að gefa sig og hún vann vissan sigur þegar henni tókst að hremma formennsku í utanríkismálanefnd þingsins og lét fórna Birgi Ármannssyni. Ólöf Nordal er tilbúin að taka við varaformennsku en ætlar sér ekki í kosningabaráttu um embættið. Það veit Hanna Birna og heldur því sínu striki.

Fari svo að Bjarni og Hanna Birna verði endurkjörin á landsfundi, þá verður það mjög veikt fyrir flokkinn og ávísun á áframhaldandi fylgisleysi. Sæki Hanna Birna sér endurnýjað umboð til landsfundar þá mun ekki líða á löngu þar til hún krefst þess að taka sæti í ríkisstjórn að nýju. 

Líklegast er að Illugi Gunnarsson víki þá úr stjórninni og fer Hanna Birna þá í menntamálaráðuneytið þar sem hún þekkir vel til frá því hún var aðstoðarmaður ráðherra í tíð Björns Bjarnasonar sem veitti henni þar pólitískt uppeldi. Líklegt er að Illuga verði þá fengið sendiherrastarf því flokkurinn þarf á því að halda að losna við hann út úr pólitíkinni eftir að hann klúðraði ferli sínum með óhreinum samskiptum við Orka Energy.