Eldaðu einfaldasta pastað

Í hraða dagsins getur verið dásamlegt að luma á einni ótrúlega einfaldri pastauppskrift sem klikkar samt aldrei og krakkarnir þínir og maki dá eins og eldað hafi verið á Ítalíu. Sumsé; eigðu alltaf grænt tagliatelle í pakkavís í búrskápnum ásamt tómötum í niðursuðudós og rjómaosti í öskju inni í ísskáp. Í raun þarf ekki annað í réttinn, nema ef vera skyldi tvö egg, sem saka ekki í þessu tilviki - og að sjálfsögðu hvítlauk. Og sumsé; eldið pastað í 8 mínútur, hellið tómötunum út á pönnu með einu lagi af olíugljáðum hvítlauk, piprið duglega og saltið hæfilega áður en hálfum skammti af rjómaosti á móts við tómatana er skellt út á pönnuna. Sigtið vatnið frá pastanu, brjótið eggin yfir og hrærið duglega áður en sósunni er hellt yfir. Gjöriði svo vel ...