Eldaðu einfaldasta besta pastað

Pasta nærir og seður og er ljúft undir tönn. Og hafi maður sannfærst er leitin eilíf að einu sönnu uppskriftinni. Þessi hér er sú einfaldasta, hugsanlega sú besta í hlutfalli við þann eina og sama einfaldleika, nefnilega; grænt tagliatelle, ekkert annað, soðið al dente, en þó ekki fyrr en búið er að steikja hressilega mikið af söxuðum hvítlauk á olíuborinni pönnu og þegar hálfum bolla af rjóma hefur verið hellt yfir, hitinn lækkaður og smávegis gráðostur bræddur í öllu saman í bland við ríflegan pipar en minna salt þá er sósan hvíld með hálfum bolla af vatni sem hellt er varlega yfir iðandi pönnuna. Svo er vatnið tekið af pastanu, einu til tveimur eggjum kastað í ræmurnar og hært af krafti uns sósunni er hellt yfir - og ó, já ... hann klikkar ekki þessi ...