Það er alla jafna einhver ólýsanleg tign og töfrar yfir Julianne Moore sem er nú um stundir í hópu kraftmestu og hæfileikaríkustu leikkonum hvíta tjaldsins. Hún þarf ekki annað en að birtast í látlausri senu til að ræna henni allri og gera að ódauðlegri stund á striganum. Í mynd sinni Still Alice leikur hún tungumálasérfræðing sem smám saman verður málstola á mjóum slóða sínum inn í afdali Alzheimers-sjúkdómsins. Það er mikil og mannleg reisn yfir þessari mynd sem skortir svo sem ekki verðlaunin, en hér helst það þrennt í hendur sem gerir allar miklar myndir að munaði; sterkur leikur, virðing fyrir sjálfu listforminu og alvöru, alvöru handrit.
Ekki missa af still alice
Fleiri fréttir
Nýjast