Á sýningunni Áfangar í Hafnarhúsinu eru nú til sýnis 19 teikningar með olíukrít á pappír sem Richard Serra gerði í tengslum við umhverfisverk sitt Áfanga sem sett var upp í Viðey árið 1990. Auk þeirra eru 30 grafísk verk, ætingar og þrykk frá 1991 sem eru í eigu Landsbanka Íslands. Á sýningunni eru einnig þrjú vídeóverk eftir Svein M. Sveinsson (Plús film) sem er varpað samtímis á þrjá veggi í C-sal Hafnarhússins. Á þessu ári er aldarfjórðungur frá því verkið Áfangar var sett upp í Viðey en Listahátíð í Reykjavík átti frumkvæðið að uppsetningu þess og stóð Reykjavíkurborg fyrir byggingu þess. Áfangar er umhverfislistaverk sem leggur undir sig alla Vesturey Viðeyjar og samanstendur af 18 stuðlabergsdröngum sem standa tveir og tveir saman og mynda hring um eyjuna. Verkið er einstakt í ferli Serra, bæði vegna umfangs þess og efnis.
Ekki missa af serra
Fleiri fréttir
Nýjast