Skellum okkur á patti

Vandundin er jafn áhrifarík tónlistarkona í síðari tíma dægurlagasögu og Patti Smith, grannholda New Jersey mærin sem ætlaði sér lengst af að verða ljóðskáld en ruddi svo brautina fyrir síðari tíma skáldkvennasöng af tegund þeirrar rokktónlistar sem er jafn þrungin af angist og einlægni að hlustandinn verður aldrei fyllilega sáttur við aðra músík mannkyns. Þessi yndislegi Íslandsvinur er að koma til landsins svo frónverjar megi heyra samfellt hennar fyrsta meistaraverk, Hestana, sem hún sendi frá sér á miðjum áttunda áratugnum og lagði nýjan þverveg á tónlistarbrautinni. Eldra fólk en fertugt sem ætlar ekki á þennan konsert er að rugla eitthvað með sjálft sig - og því er bent á að lesa ævisöguna hennar Patti sem heitir Bara börn og sannfærir hvern sem les um hæfileika Smith ...