Ekki missa af meistara magga

Spyrja má hvaða verndarengill hafi verið yfir Íslandi það herrans ár 1945. Þá fæddust Villi Vill, Rúnni Júl, Gunni Þórðar, Megas og Maggi Eiríks, altso höfundar helftarinnar af vinsælustu og dáðustu dægurlögum þjóðarinnar, takk fyrir!

Þetta er sumsé mikið afmælisár - og spurning um að vera ekkert að tvínóna við hlutina, heldur kaupa sér miða á Magga Eiríks sem verður með sína sjötugs-afmælistónleika í Hörpu 19. september, tvenna vel að merkja og eru enn í boði miðar á fyrri konsertinn sem hefst klukkan 17:00.

Þarna mæta allar kanónurnar úr safni Magga, Ellen og Pálmi vitaskuld, en einnig KK auk nýrra og gamalla vina - og svo er það hljómsveit ásamt strengjasveit sem leikur undir.

Ó, þú, Reyndu aftur, Braggablús, Elska þig, Vegurinn heim, Samferða ... þarf nokkuð að telja upp fleiri perlur sem eru á að giska óteljandi í festi Magga sem hefur aldrei ofmetnast eða talið sig merkilegan af verkum sínum, enda eru yfirleitt allir snillingar ósköp venjulegir, á meðan þeir hinir, sem eru það ekki en telja sig vera það, breytast umsvifalaust í merkilegt fólk ...