Ekki missa af magga

Það var greinilega happastjarna yfir Íslandi árið 1945, altént einhver músíkölsk stjarna. Það herrans ár fæddust Megas, Gunni Þórðar, Rúnar Júl, Villi Vill og Maggi Eiríks. Takk fyrir. Og sá síðarnefndi er einmitt að undirbúa sína sjötugsafmælistónleika í Hörpu og örugglega Hofi þar á eftir þar sem hægt er að halla sér aftur í stólnum og leyfa gæsahúðinni að flæða um skrokkinn. Það er nánast ómannlegt hvað þessi ástsæli tónlistarmaður hefur samið margar dægurlagaperlur með textum sem eru hreint alveg séríslenskir og túlka einatt þjóðarsálina betur en annar texti. Þess vegna skal það sagt hér og með nokkuð skýru letri; kaupið miða á kallinn í virðingarskyni fyrir allt það sem hann hefur fært okkur í gegnum tíðina ...