Það er bara einfaldlega svo að snotru kaffihúsin úti á landi mega ekki gleymast - og fráleitt er að halda því fram að bestu kaffihúsin sé endilega og barasta að finna í 101 Reykjavík. Það er ekki svo - og er Bláa kannan á Akureyri glöggt dæmi um það, staðsett í Hafnarstrætinu í einu tignarlegasta húsi bæjarins sem kennt er við París, og Hólmsteinn heitinn Snædal endurgerði af orðlögðu listfengi sínu, en innandyra er Bláa kannan ekki einasta hlýleg og skemmtilega innréttuð af Sigmundi Rafni staðarhaldara, heldur eru veitingarnar fram bornar af dyggilegri virðingu fyrir hráefni og hollustu. Það er eitthvað í andrúminu á staðnum sem gerir það að verkum að manni finnst maður vera staddur úti í París, eða altént í einhverjum merkilegum útlöndum því á Bláu könnunni hefur tíminn aðra merkingu en á vanalegu kaffihúsi ...
Ekki klikka á könnunni bláu
Fleiri fréttir
Nýjast