Ekkert jafnast á við elliot

Atvinnuleikhúsin þrjú eru öll með einkar athyglisverðar stórsýningar nú um stundir; Sjálfstætt fólk í Þjóðleikhúsinu sem er afar skrautleg og sérstæð uppfærsla svo ekki sé meira sagt, Lísa í Undralandi í dásamlega fallegri og litríkri sviðsetningu hjá Leikfélagi Akureyrar – og svo er það félagi Elliot í Borgarleikhúsinu sem maður kemur eiginlega út af með kökk í hálsi; það er eitthvað svo innilega fallegt við sögu þessa alla af stráknum sem þráði ekkert heitara en að verða dansari, þvert á gildandi viðhorf á sínum uppvaxtarárum. Þessi uppfærsla er ekkert minna en veisla fyrir augað og unaður í eyrum, sennilega einhver allra best heppnaða leiksýningin sem sett hefur verið upp í Borgarleikhúsinu frá því snilldin hún Mary Poppins var þar á fjölunum, sællar minningar.


Nánar um Elliot hér: