Egill sleppti lykilþætti

Egill Helgason birti tvo áhugaverða pistla á Eyjunni nú í vikunni þar sem hann veltir fyrir sér hugsanlegum kostum eftir kosningarnar í apríl 2017.

Það eru 19 mánuðir til kosninga og einungis 40% eftir af kjörtímabilinu. Seinni hálfleikurinn líður hratt og vont að vera undir eins og er hlutskipti stjórnarflokkanna.

Egill velti fyrir sér kostum út frá hugsanlegri stöðu núverandi sex þingflokka. En hann reyndi ekki að meta möguleg áhrif nýrra framboða á líklega stjórnarmyndun vorið 2017. Allt bendir til nýrra framboða þá. Engin ástæða er til annars en að ætla að Viðreisn bjóði fram af styrk og nái miklum árangri. Þeir hafa öflugu fólki á að skipa, spennandi málefnastöðu, þurfa ekki að verja misgjörðir flokka sem þjóna sérhagsmunum fárra og Viðreisn hefur sterka fjárhagslega bakhjarla á meðan gömlu flokkarnir eru að kafna í skuldum. Þannig skuldar Sjálfstæðisflokkurinn einn 370 milljónir króna og ræður ekkert við skuldavanda sinn.

Skoðum eina sviðsmynd í viðbót við þær tvær sem Egill velti upp: Viðreisn fengi 20% atkvæða og 13 þingmenn, Sjálfstæðisflokkur einnig 20% og 13 þingmenn, Píratar héldu helmingi þess fylgis sem þeir mælast með núna, 18% og 11 þingmenn. Samfylking næði 12% og 8 þingmönnum, Framsókn 10% og 7 þingmönnum, VG 10% og 6 þingmönnum en Björt framtíð fengi 8% og 5 þingmenn.

Þá gætu ESB flokkar, Viðreisn, Píratar og Samfylking myndað meirihlutastjórn með 32 þingmönnum. Með því að bæta BF við yrði meirihlutinn með 37 menn.

Núverandi ríkisstjórn kolfélli samkvæmt þessu og fengi 20 þingmenn. Gætu ekki myndað and-Evrópustjórn þó VG kæmi til liðs við þá með sína 6 þingmenn.

Einnig má velta fyrir sér hvort fleiri alvöruframboð kæmu fram til viðbótar við Viðreisn og settu strik í reikninginn.Loks má spyrja hvort einhverjir af núverandi flokkum kunni að sameinast á næstu 19 mánuðum. Því skyldi Samfylkingin ekki sameinast Bjartri framtíð?

Eins væri fullkomlega rökrétt að Sjálfstæðisflokkur og Framsókn sameinuðust, þessir tveir miklu Framsóknarflokkar. Það er ekki að verða neinn munur á þeim eftir yfirstandandi stjórnarsamstarf í 29 mánuði.

Hannes Hólmsteinn spáði sameiningu D og B fyrir mörgum árum. Verður hann ekki loks spámaður í föðurlandi vegna þessa?