Það er ekkert óeðlilegt að skammast sín fyrir foreldrana sína einhvern tímann á lífsleiðinni, eins þakklát og ég er fyrir mína þá gat vandræðilega tímabil unglingsins verið skelfilega erfitt. Í dag hlæjum við af þessum stundum, en munið þið eftir ykkar?
Á Alþingi er hart tekist á núna rétt fyrir jól eins og svo oft áður þegar fjárlögin eru rædd. Skiptar skoðanir eru á milli manna, ólík hugmyndafræði mætist og ekki er ein rétt leið að markmiðum fyrir almannahag.
Þegar fullorðið fólk kemur saman til að ræða ýmis málefni myndi ég telja að gáfulegast væri að umræðan væri á málefnalegu stigi. Af því mætti halda að þegar þingmenn koma saman að ræða þingmál eins stór og fjárlög eru, þá væri það ekki einungis gáfulegt heldur algjört skilyrði að halda umræðunni málefnalegri.
Staðan er þó ekki þannig, eldri þingmenn sýna nýjum þingmönnum hvar Davíð keypti ölið og hika ekki við að fara í manninn frekar en málstaðinn, að grípa fram í fyrir ræðumanni og kalla um allan þingsal er orðin sorglegur vani inni á Alþingi íslendinga.
Þetta er þvert á alla flokka og því miður geta fleiri frekar en færri tekið þetta til sín.
Ég vil taka formann fjárlaganefndar sem dæmi um vikuna sem leið. Þingmaður stjórnarandstöðunar er í pontu að gagnrýna formann nefndarinar og þingmenn meirihlutans fyrir að leita skjóls undir pilsfaldi formannsins. Þegar þau orð falla telur formaður fjárlaganendar sig knúna til að labba upp að þingmanni í miðri ræðu og lyfta upp pilsinu. Um mig fór álíka mikil skömm og þegar ég var fjórtán ára gömul og móðir mín sá sig skylduga að koma niður á skólalóð til að draga mig heim fyrir framan hópinn því ég hafði svikist um heimavinnu dagsins.
Varla er hægt að finna betri líkingu því hegðun formanns fjárlaganefndar var ekkert síðri en hjá fjórtán ára gamalli unglingsstelpu.
Eruð þið fólkið sem ég á að líta upp til sem löggjafa landsins okkar, því ég finn mig alltof oft seka um að skammast mín fyrir hegðun ykkar.
Fyrir mitt leyti var ég ekki alin upp við frammíköll og að vanvirða ólíkar skoðanir, voruð þið það háttvirtir þingmenn?